Í Rokklandi vikunnar er boðið upp á brot af því besta sem var spilað og sungið á Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli á Menningarnótt.
Fyrst á svið var Glowie ? Sara Pétursdóttir sem sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2014 þegar hún var 17 ára gömul, en nýjasta lagið hennar fór akkúrat á toppinn á vinsældalista Rásar 2 á laugardaginn, lagið heitir No lie.
Á eftir henni komu fánaberar íslenska rappsins ? Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauti sem buðu svo Kött Grá Pjé og Aron Can í heimsókn.
Bubbi Morthens var næstur aleinn með gítarinn sinn, og svo var í lokin boðið upp á atriði með Ísfirskri og vestfirskri tónlist. Halldór Gunnar Pálsson frá Flateyri, sá sem samdi þjóðhátíðarlagið í ár og samdi líka Þjóðhátíðarlagið Þar sem hjartað slær sem er orðið einskonar þjóðsöngur eyjamanna. Og hann er líka sá sami og fór í kringum landið fyrir nokkrum árum og sameinaði Íslensku þjóðina í söng. Hann fékk 30.000 manns til að syngja inn á eitt og sama lagið ? lagið Ísland. Halldór er líka foringi og kórstjóri Fjallabræðra ? og hann fékk með sér hljómsveit, BG og Ingibjörgu, Mugison, Helga BJörns og fleiri.
Lagalisti:
Glowie / One day
Glowie / No more
Glowie / No lie
+++++++++++
Úlfur Úlfur / 100.000
Úlfur Úlfur feat Kött Grá Pjé / Brennum allt
Emmsjé Gauti / Djammæli
Emmsjé Gauti feat. Aron Can / Silfurskotta
+++++++++++
Bubbi / The sky is crying
Bubbi / Fallegur dagur
Bubbi / Smukke unge mennesker (Kim Larsen)
Bubbi / Stál og hnífur
Bubbi / Rómeo og Júlía
+++++++++++
Fjallabræður og Sólstafir / Fjara
Mugison Fjallabræður og Sólstafir / Ljósvíkingur
Fjallabræður og Lára Rúnars / In between
Fjallabræður og Reynir Guðmundsson / Hey kanína
Fjallabræður og Mugison og Rúna / Gúanóstelpan
Fjallabræður og Mugison / Stingum af
Fjallabræður og BG og Ingibjörg / Þín innsta þrá
Helgi Björns / Kókos og engifer
Fjallabræður og Helgi Björns / Þúsund sinnum segðu já
Fjallabræður og Helgi Björns / Húsið og ég
Fjallabræður og BG og Ingibjörg / Góða ferð