Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Meðal gesta í Kilju vikunnar er heimspekiprófessorinn Sigríður Þorgeirsdóttir. Við ræðum við hana um þýðingu á Andkristi eftir Friedrich Nietzsche sem er nýútkomin. Þýðandi er Pálína Sigríður B. Sigurðardóttir en Sigríður ritar formála. Böðvar Björnsson hóf ungur að starfa í hreyfingu samkynhneigðra sem þá voru upp til hópa í felum, hann segir okkur frá bók sinni Strákar úr skuggunum en þar rekur hann sig eftir nokkrum vörðum í sögu hreyfingarinnar. Skáldið og myndlistarmaðurinn Gunnhildur Þórðardóttir býr í Keflavík - hún ræðir um ljóðabók sina sem nefnist Dóttir drápunnar. Í Bókum og stöðum förum við um Fljótsdalshérað þar sem meðal annars koma við sögu Gunnar Gunnarsson, Skáld-Guðný og Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnari. Gagnrýnendur þáttarins rýna í Vatnið brennur eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Flóttamaður á krossgötum eigin slóðar eftir Aksel Sandemose og Sögu af svartri geit eftir Purumal Murugan.