Kiljan

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 14 af 24

Við fjöllum um tvær glænýjar skáldsögur í Kilju vikunnar. Þetta rauða, það er ástin er eftir Rögnu Sigurðardóttir og segir frá ungri listakonu sem fer til náms í París á árunum upp úr 1950. Eitt satt orð er spennusaga eftir Snæbjörn Arngrímsson ? má segja að lygar séu þema í henni. Við förum í Skagafjörð og hittum Hjalta Pálsson sem hefur unnið gríðarlegt þrekvirki, skrásetningu Byggðasögu Skagafjarðar í tíu bindum. Kristín Svava Tómasdóttir segir okkur frá nýrri bók sinni þar sem er rakin saga Farsóttar, spítala sem var reistur í Þingholtsstræti og gegndi margvíslegu hlutverki. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Aðgát og örlyndi eftir Jane Austen, Heiminn eins og hann er eftir Stefán Jón Hafstein og Staðinn eftir nýja Nóbelsverðlaunahafann, Annie Enraux.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,