Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Kilja vikunnar er efnismikil og fjölbreytt - tekur nokkuð mið af Bókmenntahátíð í Reykjavík sem hefst í dag. Sérlega góður gestur er Mariana Enriquez, rithöfundur frá Argentínu, en verk hennar hafa slegið í gegn um víða veröld. Ólafur Arnalds jarðvegsfræðingur segir okkur frá miklu verki eftir sig sem nefnist Mold ert þú. Halla Gunnarsdóttir fer með kvæði úr ljóðabókinni Þú. Sunna Ástþórsdóttir og Stefán Pálsson segja frá glæsilegri heildarútgáfu á teiknimyndasögunum um Siggu Viggu eftir Gísla J. Ástþórsson ritstjóra og blaðamann. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Grávíði eftir Fífu Larsen, Frjáls eftir Lea Ypi og Allt sem við misstum í eldinum eftir áðurnefnda Mariane Enriquez.