Kiljan 24. apríl 2024
Í Kilju vikunnar förum við að Þjóðminjasafninu og hittum Sigrúnu Eldjárn. Hún hefur skrifað og teiknað fallega og skemmtilega bók sem nefnist Sigrún á Safninu og byggist á æskuminningum…
Í Kilju vikunnar kemur Guðni Elísson og ræðir um nýja skáldsögu sína Brimhóla. Spjallað er við Rán Flygenring myndhöfund á vinnustofu hennar um bókina Eldgos. Viðtöl eru við Bernadine Evaristo um bókina Stúlka, kona, annað og Pedro Gunnlaug Garcia um nýja bók hans Lungu. Ennfremur spjallar Árni Snævarr um nýútkomna bók sína Ísland Babýlon og Rannveig Borg um Tálsýn. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur, Gegn gangi leiksins eftir Braga Ólafsson og Tugthús eftir Hauk Má Helgason.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.