Kiljan

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 20 af 24

Í Kilju vikunnar kemur Guðni Elísson og ræðir um nýja skáldsögu sína Brimhóla. Spjallað er við Rán Flygenring myndhöfund á vinnustofu hennar um bókina Eldgos. Viðtöl eru við Bernadine Evaristo um bókina Stúlka, kona, annað og Pedro Gunnlaug Garcia um nýja bók hans Lungu. Ennfremur spjallar Árni Snævarr um nýútkomna bók sína Ísland Babýlon og Rannveig Borg um Tálsýn. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur, Gegn gangi leiksins eftir Braga Ólafsson og Tugthús eftir Hauk Má Helgason.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,