Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Bragi Ólafsson er gestur í Kilju vikunnar. Við hittum hann við Laufásveg en þar í gömlu húsi er sögusvið skáldsögunnar Gegn gangi leiksins. Bergþóra Snæbjörnsdóttir ræðir við okkur um ljóðsöguna Allt sem rennur sem fékk feikigóða dóma í Kiljunni fyrr í vetur. Við fjöllum um stórglæsilega bók, Abstrakt geómetríu, en þar segir frá þessari liststefnu sem var mjög fyrirferðarmikil en líka umdeilld á árunum 1950-1960. Ásdís Ólafsdóttir, einn af höfundum bókarinnar, kemur í þáttinn. Loks segir Skúli Sigurðsson frá spennubókinni Stóri bróðir, þetta er fyrsta bók hans og er tilnefnd til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Útsýni eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttir, Millbilsmann eftir Hermann Stefánsson og Opið haf eftir Einar Kárason.