Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Kilja vikunnar er venju fremur efnismikil enda eru flestar bækur vertíðarinnar að skila sér á markað. Yrsa Sigurðardóttir spjallar við okkur um nýja glæpasögu sína sem nefnist Frýs í æðum blóð. Sigríður Hagalín Björnsdóttir kemur í þáttinn og segir frá Deus, það er skáldsaga sem fjallar m.a. um gervigreind. Melkorka Ólafsdóttir og Hlíf Una Bárudóttir eru í viðtali um ljóðabókina Flagsól þar sem er ort um sveppi af öllum gerðum sem sumir heita undarlegum nöfnum. Jón Atli Jónasson ræðir um glæpasögu sína Eitur en hún gerist í Reykjavík nútímans þar sem flæða fíkniefni. Jón Erlendsson býr á Akureyri og hefur fengist við að þýða hið mikla verk Paradísarmissi eftir John Milton, bókin er nú komin út, mörg þúsund ljóðlínur, í glæsilegri útgáfu. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Duft eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur, Það dæmist rétt vera eftir Einar Má Guðmundsson og Hvítalogn eftir Ragnar Jónasson.