Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Við förum austur á Djúpavog í Kilju vikunnar og hittum Sigurð Guðmundsson myndlistarmann sem fellst á það með semingi að láta líka kalla sig rithöfund. Sigurður er nýbúinn að senda frá sér stóra bók sem nefnist Sextet. Vöggudýrabær er ný ljóðabók eftir Kristján Hrafn Guðmundsson sem kemur í þáttinn. Kristján segir í ljóðformi sögu móður sinnar sem í frumbernsku dvaldi á vöggustofu. Vilborg Davíðsdóttir ræðir um Land næturinnar, það er enn ein bókin eftir hana sem gerist á víkingatímanum. Í bókinni fer söguhetja hennar í Austurveg, til Garðaríkis og Miklagarðs. Furðusagnahöfundurinn Alexander Dan fræðir okkur um verk sín sem gerast í hliðarveruleika Reykjavíkur og koma út bæði á íslensku og ensku. Nýjasta bók hans nefnist Hrímland: Seiðstormur. Gagnrýnendur þáttarins ræða um Klettinn eftir Sverri Norland og Þannig var það eftir nýja Nóbelshöfundinn Jon Fosse.