Jónatan Garðarsson og Kolbrún Halldórsdóttir (annar þáttur)
Raddir Rásar 2 er nýr þáttur sem er á dagskrá eftir hádegisfréttum á sunnudögum í sumar. Tilefnið er 40 á afmæli Rásar 2 sem var sett í gang 1. desember 1983.
Við ætlum að tala um Rás 2 í þessum þáttum og gestir þáttarins munu allir eiga það sameiginlegt að tengjast Rás 2 á einhvern hátt, og í flestum tilfellum er þetta fólk sem hefur starfað á Rás 2 og verið áberandi í dagskránni. Fólk sem hlustendur Rásar 2 í gegnum tíðina þekkja.
Við tökum þetta í tímaröð og núna í júní einbeitum við okkur að fyrstu árunum 1983-1990 þegar Rásin var að slíta barnsskónum.
Gestir í öðrum þætti eru Jónatan Garðarsson sem var dagskrárgerðarmaður þegar Rás 2 fór í loftið og Kolbrún Halldórsdóttir sem kom til starfa tveimur árum seinna. Þau höfðu bæði verið á Rás 1 áður en Rás 2 tók til starfa.
Frumflutt
11. júní 2023
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Raddir Rásar 2 í 40 ár
Ólafur Páll Gunnarsson rifjar upp raddir Rásar 2 í 40 ár.