Helgarútgáfan

Hólmfríður Hafliða og Unnsteinn Manúel mæltu með ýmsu góðu og girnilegu

Helgarútgáfan heilsaði hádegisfréttum loknum og skrunaði yfir dagskrá helgarinnar þegar kom bæjarhátíðum og viðburðum hvers konar. Fjölmargir á ferð og flug um landið, meðal annars tónlistarfólk með sín hljóðfæri og við hringdum í Sigríði Thorlacius sem ásamt vinum sínum í GÓSS voru í hleðslustoppi á Hólmavík. Leið þeirra Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði.

Þau Hólmfríður Hafliðadóttir leikkona og tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manúel litu við í Meðmælasúpu. Þau koma einkar vel undan vetri bæði tvö, Unnsteinn brilleraði í Gæðablóði í Þjóðleikhúsinu á síðustu mánuðum og það gerði Hólmfríður einnig á fjölum Leikhús Akureyrar, í sýningunni Birtingi og auðvitað sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað á RÚV.

Þau Hólmfríður og Unnsteinn telja besta leiðin til njóða íslenska sumarsins ganga á fjöll með nesti og góða skó og hvöttu einnig til þess grilla meira af fiski. Við þurfum borða oftar fisk. Það stóð ekki á meðmælunum á sjónvarpsáhorfi ef ske skyldi það myndi rigna mikið í sumar, Maternal Instinct er heimildamynd um sérstæð sakamál sem Unnsteinn mælti með og er aðgengileg á Netflix. Á sömu veitu er hægt kafa á frumlegar lendur, líkt og Hólmfríður upplýsti um hún gerði gjarnan, og finna kóreskt drama eða K-drama. Loks fengum við krassandi meðmæli úr eldhúsinu og við mælum með hlustun á Meðmælasúpu dagsins.

Undir lok þáttar fengum við leynigest en það var engin önnur en Júlía Margrét Einarsdóttir dagskrárgerðarkona og rithöfundur sem ætlar stýra Helgarútgáfunni næstu vikurnar í fjarveru Kristjáns Freys.

Og þar sem gestir þáttarins bera svo falleg nöfn þá spurðum við hlustendur hvort þau myndu eftir skemmtilegum laugardagslögum sem tengjast mannanöfnum. Og það var eins og við munninn mælt tillögurnar komu í hrönnum.

RETRO STEFSON - Mama Angola

NÝDÖNSK - Hólmfríður Júlíusdóttir

ÉG - Helgi

MOSES HIGHTOWER - Ráðahagur

KOOL & THE GANG - Joanna

BIRNIR, GDRN - Vilt

SOMBR - Potential

UNA TORFA, ÁGÚST - Inn í síðustu nóttina

BJÖRN JÖRUNDUR OG EYJÓLFUR KRISTJÁN - Álfheiður Björk

IÐUNN EINARS - Ef ég dey á morgun

SIGRÍÐUR THORLACIUS & SIGGI GUÐMUNDS - Hjarta mitt

BJARTMAR GUÐLAUGSSON, EIRÍKUR FJALAR - Járnkarlinn

ROXY MUSIC - Let's stick together

HIPSUMHAPS - Meðal mannsins (þjóðsöngurinn)

HAUKAR - Fiskurinn hennar Stínu

MADONNA, SABRINA CARPENTER - Bring Your Love

KIM LARSEN - Susan Himmelblå

STEINUNN JÓNSDÓTTIR - Spóla til baka

MARSIBIL - Allir slakir

KK, EMMSJÉ GAUTI - Þúsund fleiri ár

CHEMICAL BROTHERS - Go ft. Q-Tip

THE SMASHING PUMPKINS - Tonight, Tonight

GÓSS - Sólarsamba

R.E.M. - Shiny Happy People

DJ Ötzi - Sweet Caroline

FJALLABRÆÐUR & MAGNÚS ÞÓR - Freyja

ROBYN - Dancing On My Own

Birt

27. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,