Helgarútgáfan heilsaði að hádegisfréttum loknum og skrunaði yfir dagskrá helgarinnar þegar kom að bæjarhátíðum og viðburðum hvers konar. Fjölmargir á ferð og flug um landið, meðal annars tónlistarfólk með sín hljóðfæri og við hringdum í Sigríði Thorlacius sem ásamt vinum sínum í GÓSS voru í hleðslustoppi á Hólmavík. Leið þeirra lá að Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði.
Þau Hólmfríður Hafliðadóttir leikkona og tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manúel litu við í Meðmælasúpu. Þau koma einkar vel undan vetri bæði tvö, Unnsteinn brilleraði í Gæðablóði í Þjóðleikhúsinu á síðustu mánuðum og það gerði Hólmfríður einnig á fjölum Leikhús Akureyrar, í sýningunni Birtingi og auðvitað sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað á RÚV.
Þau Hólmfríður og Unnsteinn telja að besta leiðin til að njóða íslenska sumarsins sé að ganga á fjöll með nesti og góða skó og hvöttu einnig til þess að grilla meira af fiski. Við þurfum að borða oftar fisk. Það stóð ekki á meðmælunum á sjónvarpsáhorfi ef ske skyldi að það myndi rigna mikið í sumar, Maternal Instinct er heimildamynd um sérstæð sakamál sem Unnsteinn mælti með og er aðgengileg á Netflix. Á sömu veitu er hægt að kafa á frumlegar lendur, líkt og Hólmfríður upplýsti um að hún gerði gjarnan, og finna kóreskt drama eða K-drama. Loks fengum við krassandi meðmæli úr eldhúsinu og við mælum með hlustun á Meðmælasúpu dagsins.
Undir lok þáttar fengum við leynigest en það var engin önnur en Júlía Margrét Einarsdóttir dagskrárgerðarkona og rithöfundur sem ætlar að stýra Helgarútgáfunni næstu vikurnar í fjarveru Kristjáns Freys.
Og þar sem gestir þáttarins bera svo falleg nöfn þá spurðum við hlustendur hvort þau myndu eftir skemmtilegum laugardagslögum sem tengjast mannanöfnum. Og það var eins og við munninn mælt að tillögurnar komu í hrönnum.
RETRO STEFSON - Mama Angola
NÝDÖNSK - Hólmfríður Júlíusdóttir
ÉG - Helgi
MOSES HIGHTOWER - Ráðahagur
KOOL & THE GANG - Joanna
BIRNIR, GDRN - Vilt fá
SOMBR - Potential
UNA TORFA, ÁGÚST - Inn í síðustu nóttina
BJÖRN JÖRUNDUR OG EYJÓLFUR KRISTJÁN - Álfheiður Björk
IÐUNN EINARS - Ef ég dey á morgun
SIGRÍÐUR THORLACIUS & SIGGI GUÐMUNDS - Hjarta mitt
BJARTMAR GUÐLAUGSSON, EIRÍKUR FJALAR - Járnkarlinn
ROXY MUSIC - Let's stick together
HIPSUMHAPS - Meðal mannsins (þjóðsöngurinn)
HAUKAR - Fiskurinn hennar Stínu
MADONNA, SABRINA CARPENTER - Bring Your Love
KIM LARSEN - Susan Himmelblå
STEINUNN JÓNSDÓTTIR - Spóla til baka
MARSIBIL - Allir slakir
KK, EMMSJÉ GAUTI - Þúsund fleiri ár
CHEMICAL BROTHERS - Go ft. Q-Tip
THE SMASHING PUMPKINS - Tonight, Tonight
GÓSS - Sólarsamba
R.E.M. - Shiny Happy People
DJ Ötzi - Sweet Caroline
FJALLABRÆÐUR & MAGNÚS ÞÓR - Freyja
ROBYN - Dancing On My Own