Helgarútgáfan sendi út frá Hjalteyri við Eyjafjörð þennan laugardaginn en þar fór fram áhugaverð listahátíð í gamalli síldarverksmiðju sem kennd var við Kveldúlf á fyrri hluta síðustu aldar. Og þaðan fær listahátíðin Kveldúlfur nafn sitt og gestir þáttarins áttu öll sinn þátt í að gera hátíðina að þeirri skemmtun sem hún varð. Sara Bjarnason er listrænn stjórnandi og verkefnastjóri hátíðarinnar og hún sagði okkur frá tilurð Kveldúlfs og hvað gestir áttu í vændum.
Inspector Spacetime er orðin ein af vinsælustu stuðsveitum landsins, svo vinsæl að hópur ungs fólks er farið að elta sveitina hvert á land sem er til að upplifa tónleika þeirra. Tónlistin hefur ekki ekki bara heillað íslenska þjóð heldur hefur hljómsveitin ferðast víðar um Evrópu og víðar til þess að leika sína fjörugu og dansvænu tónlist. Athygli vakti þegar stórfyrirtækið Apple fékk eitt af lögum sveitarinnar í auglýsingu fyrir iPhone 17 símann í vor. Þau Egill, Elías og Vaka mættu í spjall.
Reykhóladagar, stærsta litla bæjarhátíð landsins, fór fram á Reykhólum síðustu helgi, þar sem tónlist, fjölskylduskemmtun, íþróttir, menning, matur og sveitastemning var í forgrunni. Embla Dögg Bachmann hefur stýrt undirbúningi hátíðarinnar síðustu ár og við trufluðum hana í miðri dráttarvélafimi og rétt áður en þarafótbolti hófst.
Eyfirski rapparinn Saint Pete hefur notið mikilla vinsælda síðustu misseri og er einn sá eftirsóttasti í íslensku hipphoppi um þessar mundir. Hann var einn þeirra sem kom fram á listahátíðinni Kvelúlfi, undir beru lofti í Eyjafirði og því á heimvelli ef svo mætti segja. Saint Pete var á línunni akandi frá Borgarfirði og sagði okkur hvað væri fram undan hjá sér.
Tónlistin bar keim á hátíðinni sem við heimsóttum en einnig fengum við góða hjálp frá hlustendum sem völdu norðlenska tónlist frá Eyjafirði og nærliggjandi sveitum. Og þar var nóg til frammi:
HJÁLMAR - Gakktu alla leið
SAINT PETE - Superman
SKEE-LO - I wish
SKRIÐJÖKLAR - Bíllinn minn og ég
DUA LIPA, CALVIN HARRIS - One Kiss
KUSK OG ÓVITI - Augnaráð
200.000 NAGLBÍTAR - Brjótum það sem brotnar
XXX ROTTWEILER HUNDAR - Bent nálgast
PHIL OAKLEY AND GIORGIO MORODER - Together In Electric Dreams
STEFÁN HILMARSSON - Þrátt fyrir allt
BARAFLOKKURINN - Matter of time
OF MONSTERS AND MEN - Ordinary Creature
TRAVIS - Flowers In The Window
STUÐKOMPANÍIÐ - Framadraumar
HELGI BJÖRNSSON - Allt ljómar
KACEY MUSGRAVES - I Believe In Ghosts
TOM TOM CLUB - Genius of Love
INSPECTOR SPACETIME - People in the Video
TONNATAK - Með bumbuna yfir bibbanum
THE EMOTIONS - Best Of My Love
AMABADAMA - Gaia
CHAKA KHAN, SNOOP DOGG - Boogie's in My Soul
STEBBI JAK - Dönsum inn í hljóða nótt
KÖTT GRÁ PJÉ, FONETIK SIMBOL - Hvít ský
DRYKKIR INNBYRGÐIS - Í gegnum tíðina
HVANNDALSBRÆÐUR - LaLa lagið
AMY WINEHOUSE - Love is a losing game
SAINT PETE, FM95BLÖ - City Of Joy
HLJÓMSVEIT INGIMARS EYDAL - Í sól og sumaryl
AMOR VINCIT OMNIA - 100.000 km/klst
DEILDARBUNGUBRÆÐUR - María draumadís
CALVIN HARRIS, JAZZY - Satisfy
BRENNDUR BANANARNIR - Ég nenni ekki að labba upp gilið
MOSES HIGHTOWER - Húsið mitt