Upp var runninn þessi drottinsdagur, 16. maí og þjóðin gengur til kosninga. Það ríkti mikil spenna yfir sveitasjórnarkosningum um allt land og ljóst að Helgarútgáfan þyrfti að vera með léttara móti þennan daginn til að vega upp á móti rafmagnaðri spennunni. Og til þess að bæta á spennuna voru úrslit í Eurovision fram undan einnig.
Það eina rétta var því að bjóða upp á milda meðmælasúpu með góðu fólki og því var hið stórskemmtilega tónlistarfólk Eyjólfur Kristjánsson og Hera Björk Þórhallsdóttir boðað í hljóðver Rásar 2 í létt laugardagsspjall.
Rannsóknarspurningin sem hent var til hlustenda var „Ef við mættum senda lag úr 40 ára sögu Söngvakeppni Sjónvarpsins sem ekki fór út á sínum tíma - hvaða lag myndir þú senda til að heilla Evrópu?“ sló í gegn og tillögurnar voru jafn skemmtilegar og þær voru margar. Og eins og sannur frambjóðandi þá hlustaði þáttastjórnandi á þjóðina og spilaði eftirfarandi lög:
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON - Norðurljós
HERA BJÖRK - Je Ne Sais Quoi
UNA TORFA, ÁGÚST - Inn í síðustu nóttina
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Mín þrá
DAÐI FREYR - Whole Again
MAGNI - Ég trúi á betra líf
LOLA YOUNG - Messy
REGÍNA ÓSK - Þér við hlið
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Ég lifi í draumi
FRIÐRIK DÓR - Í síðasta skipti
PÍLA - Annað líf
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Sóley
ABBA - Waterloo
BOTNLEÐJA - Eurovísa
BIRGO - Ég flýg í storminn
BRÆÐRABANDALAGIÐ - Sólarsamba
HEIÐA OG HEIÐINGJARNIR - Tangó
SÉBASTIEN TELLIER - Divine
BJARNI ARA - Karen
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL OG SALSASVEITIN - Ferrari
BJÖRGVIN HALLDÓRS. & ERNA GUNNARSD. - Lífsdansinn
MÅNS ZELMERLÖW - Heroes
SVAVAR KNÚTUR, HREINDÍS YLFA - Lífið snýst
MERCEDES CLUB - Ho, Ho, Ho, We Say, Hey, Hey, Hey