22:05
PartyZone - Undir diskókúlunni
Party Zone - Undir diskókúlunni : 28. júní
PartyZone - Undir diskókúlunni

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskóþrennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar og íslenska lagið. Gestur þáttarins fær nafnbótina Veislustjórinn og rifjar upp trylling á dansgólfinu og velur nokkur lög. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Umsjón: Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason

Í þessum þætti er meðal annars farið aftur til dansársins 1993, spiluð nokkur gömul topplög PZ listans ásamt því að þáttarstjórnendur fara um víðann völl í frímínútum kvöldsins. Kokteill kvöldsins er söguleg upptaka frá Party Zone'95 kvöldi sem haldið var á skemmtistaðnum Jacobsen í júní mánuði 2009 þar sem margar dansbombur fortíðarinnar hljómuðu fram eftir morgni í svakalegu partýi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 53 mín.
,