18:00
Kvöldfréttir
Arion sektaður, Biden á kosningafundi og borgin herjar á eldri ferðamenn
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Arion banki verður að greiða rúmlega hálfan milljarð króna í sektir fyrir að hafa ekki gætt nægilega að aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Brot bankans voru mörg og alvarleg.

Nýsamþykkt lögreglulög koma til með að bæta störf lögreglu að mati afbrotafræðings. Fjölbreytni nefndarmanna í nefnd um eftirlit með lögreglu hefði þó mátt vera meiri.

Reykjavíkurborg segist verða af talsverðum tekjum með því að rukka ekki erlenda ferðamenn um gjald í sundlaugar borgarinnar. Um 14 þúsund eldri ferðamenn sækja sundlaugarnar á ári hverju

Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni bræðra sem voru sakfelldir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við Zúistatrúfélagið. þeir voru sýknaðir í héraði en dæmdir í Landsrétti.

Er aðgengilegt til 28. júní 2025.
Lengd: 10 mín.
,