16:05
Síðdegisútvarpið
Hjörvar Hafliðason Dr. Football í Ölsen,lögreglumenn felldu kjarasamning, brúðkaupstískan og Brákarhátíð
Síðdegisútvarpið

Á morgun hefjast 16 liða úrslit á EM í knattspyrnu og við ætlum að heyra í Hjörvari Hafliðasyni Doktor Football sem staddur er í Þýsklandi en fyrr í dag heimsótti hann bæinn Ölsen. Við tökum stöðuna á Hjörvari á eftir.

Svo eru það kjaramálin, en lögreglumenn felldu nýjan kjarasamning með miklum meirihluta. Kemur það á hæla nýju frumvarpi á þingi þar sem lögð var áhersla á hóflegar launahækkanir meðal háttsettra opinberra starfsmanna til að draga úr verðbólgu. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna kíkir á okkur og segir okkur betur frá.

Helvítis kokkurinn hann Ívar gefur okkur sumarlega uppskrift á eftir.

Camilla Rut fer yfir allt það helsta í brúðkaupstískunni og Hafþór Gunnarsson segir okkur frá Brákarhátíð í Borgarnesi.

Er aðgengilegt til 28. júní 2025.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,