12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 02. janúar 2024
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir mikilvægt að geta litið glaður um öxl. Hann hafi ekki viljað eiga á hættu að sitja of lengi á röngum forsendum og hafi hugsanlega sett fordæmi með því að sitja ekki lengur en tvö kjörtímabil.

Fimm úr áhöfn flugvélar japönsku landhelgisgæslunnar létust þegar hún skall saman við farþegavél á Haneda-flugvelli í Tókýó í dag. Ótrúlegt þykir að allir í farþegavélinni hafi bjargast, en hún varð alelda á innan við klukkustund.

Hægst hefur á landrisi við Svartsengi. Sama gerðist dagana á undan gosinu í desember. Vísindamaður á Veðurstofunni segir það geta þýtt að styttist í næsta gos

48 hafa fundist látnir í rústum húsa á vesturströnd Japans, þar sem stór jarðskjálfti reið yfir í gær. Björgunarstarf er afar krefjandi.

Ekki er útlit fyrir að hægt verði að aflétta rýmingu í Seyðisfirði í dag. Snjóflóð hafa fallið í Eskifirði, Norðfirði og í Oddsskarði, en hvergi nálægt byggð.

Reykjavíkurborg er tilbúin að halda aftur að gjaldskrárhækkunum, að sögn verðandi borgarstjóra. Samtök atvinnulífsins og stéttarfélög hafa krafist þess að sveitarfélög styðji markmið kjarasamninga.

Ekki hefur náðst niðurstaða í hver ber ábyrgð á kostnaði við viðgerð vatnsleiðslu til Vestmannaeyja. Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir HS Veitur bera ábyrgð á öllu viðhaldi vatnslagnarinnar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,