22:08
Sumarmál
Koma farfugla til landsins, Jeppaþjóðin og breyttir jeppar og fuglinn

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Fugl dagsins err á sínum stað hjá okkur í Sumarmálum í dag en við látum það ekki nægja þar sem við ræddum komu farfugla til landsins á vorin við Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Rannsóknir Tómasar og föður hans, Gunnars Tómassonar, leiða í ljós að þótt vor geti verið afar ólík, bæði milli ára og jafnvel innan sama árs, með hretum eða hlýindum á víxl, sýna langtímamælingar engu að síður að loftslag fer hlýnandi, sem veldur því að farfuglar eru fyrr á ferðinni en áður.

Við höfum fengið á miðvikudögum í sumar innslög sem Elísabet Thea Kristjánsdóttir hefur unnið fyrir okkur sem kallast Jeppaþjóðin og í dag var komið að því fjórða í röðinni. Í því kafar Elísabet í tæknilegar hliðar jeppabreytinga og íslensk einkenni þess að aka í snjó. Hún ræddi við Frey Þórsson, sérfræðing á sviðinu, um íslenska fyrirtækið Arctic Trucks og þróun sérútbúinna ökutækja fyrir fjölbreytt not hérlendis en ekki síst erlendis, þar sem íslensk nýsköpun er nýtt við krefjandi aðstæður á afskekktum svæðum víða um heim, líkt og á suðurskautinu og Dubai.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Ljúflingshóll / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jóns Múla Árnason, texti Jónas Árnason)

I'm on Fire / Bruce Springsteen (Bruce Springsteen)

Slow Dancing With The Moon / Dolly Parton (Mac Davis)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,