16:05
Tengivagninn
Þýðandinn Larissa Kyzer, Hómer og hexameter, á rúntinum með borgarstjóra

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.

Larissa Kyzer er bandarískur bókmenntafræðingur og þýðandi úr íslensku yfir á ensku. Hún hefur þýtt fjölda íslenskra skáldsagna, sem margar hverjar hafa hlotið góðar viðtökur, þar má nefna Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Elínu, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Við hringjum til Brooklyn og ræðum þýðingarvinnuna, hvers vegna hún kemur til Íslands, og erindi íslenskra bókmennta við hinn enskumælandi heim.

Svo fáum við annað innslag frá Magnúsi Sigurði Jónassyni, nema í MH, í dag fer hann á rúntinn með borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, og tekur tímann hvað hún er lengi að fá stæði í miðborginni.

Við fræðumst einnig um Hómer og kviður hans í tilefni þess að kvikmynd Christopher Nolan, The Odyssey, er nú í bíó.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,