Hljóðvegur 1

Baldur snýr heim, stórátak gegn fíknivanda og heimsókn í Sjóböðin

Ferjan Baldur snýr heim á morgun og hefur siglingar um Breiðafjörð á á föstudag. Brotthvarf hennar hefur haft veruleg áhrif á ferðaþjónustu og aðra atvinnustarfsemi á svæðinu. Ferðamönnum hefur fækkað svo um munar og þjónusta við íbúa verið minni. En sér fyrir endann á þessu. Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar var á línunni.

Samheldni er nýr átakssjóður sem ætlað er standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum á meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi. Samherji stendur stofnun sjóðsins og mun árlega leggja fram 20 milljónir króna næstu fimm árin. Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja kom til okkar.

Götubitahátíðin var haldin í Hljómskólagarðinum síðustu helgi. Tasty hreppti verðlaun fyrir besta smábitann þessu sinni. Pétur Jónsson og Sveinn Sævarsson kíktu til okkar með besta smábitann 2026.

Markmið Öræfaskólans er stuðla þekkingu auknu aðgengi ungmenna vettvangsmiðaðri fræðslu um loftslags- og jöklabreytingar en jafnframt kynna fjölbreytta útivistarmöguleika og starfsvettvang tengda jöklum. Í samstarfi við Jöklarannsóknafélag Íslands bjóða þau upp á námskeið fyrir 18-25 ára í sumar. Erla Guðný Helgadóttir var á línunni og sagði okkur frá þessum nýja skóla.

Steiney var á ferðinni um Norðurland síðustu daga og kíkti meðal annars í Sjóböðin á Húsavík. Sjóböðin voru upprunalega tankur sem borhola með heitu sjóvatni streymdi í og heimamenn flyktust til baða sig í. Steiney spjallaði við Helgu Björgu Sigurðardóttur hjá Sjóböðunum.

Bjarni Snæbjörnsson hefur verið gifta fólk á vegum siðmennt vítt og breytt um land auk þess sem hann byrjaði með blómabíl í sumar. Bjarni var á línunni hjá okkur á en hann er staddur á Tálknafirði þar sem Tálknafjör verður haldið um helgina.

Birt

22. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,