Það var sól á suðvesturhorninu og í tilefni þess var Hljóðvegur 1 sendur út beint frá Austurvelli sem var iðandi af mannlífi.
Við ræddum við Sverri Gauta Svavarsson sem sagði hlustendum frá alls kyns blómum og plöntum sem hægt er að nýta í matargerð. Sverrir fékk áhuga á garðyrkju í Covid-faraldrinum en í dag er hann duglegur við að deila alls kyns fróðleik um hana á samfélagsmiðlum.
Jón Bjarni Steinsson eigandi Dillon settist hjá okkur í sólinni á Austurvelli og sagði okkur frá hvernig rokkhátíðin Rokk í Reykjavík hefði gengið í sumar. Hann er einnig að skipuleggja Almyrkvahátíðina sem verður haldin á Hellissandi á Snæfellsnesi sem styttist óðum í.
Við ræddum einnig við Jón Mýrdal veitingamann sem sagði frá nýja veitingastaðnum sínum og hvernig rekstrarumhverfi veitingastaða á Íslandi er í dag.
Þá bárust tvö póstkort frá Flatey sem Hólmfríður heimsótti um helgina. Kirkjan í Flatey fagnar í ár hundrað ára afmæli og því hefur mikið verið um að vera í eyjunni í sumar. Hólmfríður ræddi við Gyðu Steinsdóttur sem kom að skipulagningu afmælisins. Hún sagði frá lífinu í Flatey, afmælinu og hvað fram undan er í eyjunni.
Þá náði Hólmfríður einnig tali af Unu og Tuma Torfabörnum sem héldu tónleika í þéttsetinni Flateyjarkirkju á laugardaginn. Systkinin eiga ættir að rekja í eyjuna og hafa dvalið þar oft sem börn. Hlustendur fá að heyra smá hljóðbrot frá tónleikunum úr kirkjunni.
Birt
27. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.