Tölvurþrjótar gerðu árás á hýsingaraðila Austurfréttar í gærkvöldi og hefur vefurinn legið niðri það sem af er degi. Í tilkynningu svæðismiðilsins á Facebook segir að enginn gagnaleki hafi orðið en að það muni taka tíma að koma vefþjónustunni aftur í gang. Við ræddum við Gunnar Gunnarsson ritstjóra Austurfréttar.
Sólmyrkinn nálgast og búist er við þúsundum ferðamanna auk Íslendinga sem munu ferðast um vestan vert landið til að berja sólmyrkvann augum. Vegagerðin stendur í ströngu þessa dagana við að laga vegi til að ráða við allan þennan fjölda. Pétur Matthíasson forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar kíkti til okkar.
Botnum vikuna er vikulegur liður á Hljóðvegi 1 þar sem við fáum hagyrðing til okkar með fyrri part sem hlustendur geta svo botnað inni á samfélagsmiðlum Rásar 2 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]. Við lesum botnana í föstudagsþættinum.
Hagyrðingur vikunnar er Steinunn Jónsdóttir en hún útbjó þennan fyrripart:
Ef þér í raun finnst rigningin góð,
í Reykjavík máttu við una.
Á námskeiðinu Tungumálatöfrar á Flateyri gefst tvítyngdum og fjöltyngdum börnum tækifæri til þess að æfa íslensku í gegnum listsköpun, tónlist og útivist. Námskeiðið verður haldið 4. til 9. ágúst og eru öll börn á aldrinum fimm til fjórtán ára velkomin. Anna Sigríður Sigurðardóttir verkefnastjóri námskeiðisins var á línunni.
Bæjarstjóraröltið var á sínum stað en þessa vikuna var það Bergþór Bjarnason, sveitastjóri Norðurþings sem sagði okkur frá sínum uppáhaldsstað á Húsvík.
Þakið er nýtt útisvæði í Kringlunni sem verður opnað í dag. Samkvæmt rannsóknum er afburða gott veður á þakinu en hitastig mælist víst 1-2 gráðum hærra en annarsstaðar í Reykjavík. Við vorum í beinni frá þessu nýja útisvæði.
Agnes Wild og bræður hennar brunuðu af stað úr Reykjavík á hádegi til að ná miðum á tónleika Innvortis á Húsavík í kvöld. Vonandi ná þau miðum því á morgun þurfa þau að keyra til baka til Reykjavíkur.