Hljóðvegur 1

Hvalveiðar, hundar, húsgagnasmiður og húðflúr í Hafnarfirði

Hvalveiðar eru enn á í brennidepli, veiðarnar eru umdeildar og skipta þjóðinni í fylkingar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, var á línunni.

Við vorum stödd á Orkumótinu í Vestmannaeyjum um liðna helgi. Þar spiluði meðal annars gestalið sem kom hingað alla leið frá Mumbai á Indlandi, sem gestalið á mótið, fyrir milligöngu meðal annars Heimis Hallgrímssona, fyrrum landsliðsþjálfara. Við heyrðum í strákunum og þjálfara liðsins.

Í sumar býður Hafnarfjarðarbær upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld. Klukkan fimm var Fjölskylduganga í Valaból sem Kolbrún Kristínardóttir leiðir. Steiney var á svæði og færði okkur stemmninguna í hljóðformi.

Steiney heimsótti húðflúr- og götunarstofu í Hafnarfirði og forvitnaðist aðeins um sumartískuna í húðflúrum og götunum.

Hólmfríður tók hús á Harriet Cardew. Hún er 22 ára húsgagnasmiður og listakona sem ólst upp í gamalli verksmiðju á Kársnesinu sem fjölskyldan gerði upp, og hefur alla tíð verið dugleg skapa. Harriet smíðar rúmbotna og kistur, rennir leir og býr þannig til heilu bolla- og matarstellin.

Miðvikudagar hafa verið hundadagar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Og í sumar munu bætast laugardagar við og í dag var glatt á hjalla. Næstu miðvikudaga geta hundaeigendur snúið lukkuhjóli fyrir sín dýr og látið hundana spreyta sig á þrautabraut. Jóhann Alfreð kíkti áðan í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og tók púlsinn á bæði mönnum og ferfætlingum.

Birt

1. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,