Ríflega hundrað kílóum af kókaíni var smyglað til landsins á dögunum með súrálsskipi frá Brasilíu. Þetta er stærsta sending af kókaíni sem lögreglan á Íslandi hefur komist yfir. Minnst níu hafa verið handteknir og færðir í gæsluvarðhald vegna málsins, þar af þrír Íslendingar. Þóra Tómasdóttir og Stígur Helgason greindu fyrst frá málinu í dag. Stígur fór yfir málið með okkur.
Noregur mætir Fílabeinsströndinni í 32-liða úrslitum á HM í dag. Norsku áhorfendurnir hafa vakið mikla athygli á mótinu en þeir hvetja sína menn til dáða með því að róa í takt og gefa frá sér HÚH! Skiptar skoðanir eru um ágæti þessa uppátækis Norðmanna, sumir eru á því að þeir norsku séu einfaldlega að stela Víkingaklappinu góða sem Íslendingar gerðu frægt á sínum tíma. Til að fá úr því skorið ákváðum við að bera málið undir dómstól götunnar, sem í þetta sinn voru spekingar sem við náðum tali af fyrir framan World Class í Laugum.
Arnór Björnsson sem skrifaði og lék í þáttunum Tuttugu og eitthvað var steggjaður á dögunum. Hann fór sáttur að sofa eftir skemmtilega steggjun. Morguninn eftir var hann hinsvegar vakinn, bundið fyrir augun á honum og hann settur upp í flugvél. Hann lenti svo í Færeyjum EINN og fékk þau fyrirmæli að ef hann vildi fá flugmiðann heim þyrfti hann að klára ákveðin verkefni. Arnóri tókst þetta, er kominn aftur til Íslands og mætti í hljóðstofunar til okkar og sagði okkur frá þessari óvenjulegu steggjun.
Það er sumarfrí í skólum landsins og boðið upp á allskonar sumarnámskeið fyrir börn. Eitt þeirra er Barbífatahönnun hjá Hönnunarsafn Íslands þar sem krakkar á aldrinum 9-12 ára læra að hanna og sauma barbíföt frá grunni. Leiðbeinandinn Guðrún Sigurjónsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá námskeiðinu.
Hveragerðisbær fagnar 80 ára afmæli um þessar mundir. Jóhann Alfreð var í bænum í síðustu viku og mælti sér mót við nýja bæjarstjórann, Ingimar Guðmundsson. Hann er yngsti bæjarstjóri landsins nú um stundir og hann valdi stað í bænum fyrir hlustendur til að segja frá í liðnum Bæjarstjóraröltið.
Það verður garðpartý á Hrísateig 21 í kvöld. Grillið verður heitt, það verður sett upp svið, lifandi tónlist flutt og Jónsmessunni fagnað. Það eru allir velkomnir í fögnuðinn en samhliða á að safna framlögum til Ljóssins, endurhæfingamiðstöð fyrir krabbameinsveika. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem húsráðendur standa fyrir sambærilegum fögnuði en Jóhann Alfreð kíkti í heimsókn þegar undirbúningur var í fullum gangi og forvitnaðist um herlegheitin.