
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.
óhann Alfreð var staddur í Hveragerði í þætti dagsins. Hann heimsótti sundlaugina í Laugaskarði en lítil sýning um sögu laugarinnar hefur verið sett upp í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar í lauginni. Jóhann hitti á Ólöfu Jónsdóttur, forstöðukonu sundlaugarinnar.
Tónlistarhátíðin Hverafugl fer fram í fyrsta sinn um helgina í Hveragerði. Einn af hápunktum hátíðarinnar verða tónleikar sem fram fara í sundlauginni í Laugaskarði á sunnudag klukkan tvö. Halldór Smárasón, tónlistarmaður er einn af hvatamönnum hátíðarinnar. Hann hefur verið búsettur í Hveragerði í 8 ár og ræddi við okkur frá Laugaskarði um hátíðina, menningarlífið í Hveragerði og búsetuna þar.
Jóhann hélt áfram vappinu Hveragerði og rak inn nefið í Garðyrkjustöðina Flóru og ræddi við Þorvald Snorrason, garðyrkjubónda um hinn blómlega bæ og háönnina í sumarblómum.
Steiney hefur einnig verið á ferðalagi fyrir vestan. Í dag fengum við að heyra frá heimsókn hennar í Melrakkasetrið í Súðavík.
Dagrún Ósk Jónsdóttir Þjóðfræðingur kíkti einnig í hljóðstofuna í Efstaleiti og fræddi hlustendur um Jónsmessu. Þó svo að hátíðahöld hafi ekki farið hátt á Íslandi þá er þjóðtrú tengd deginum nokkuð sterk. Eru það þá jafnan þjóðsögur og hefðir sem hafa tengingu við náttúruna.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.