12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 22. júlí 2026

Útvarpsfréttir.

Forseti Úkraínu hefur rekið yfirmann hersins eftir fjölmenn mótmæli. Vinsæll varnarmálaráðherra, sem var rekinn í síðustu viku, snýr aftur í nýtt hlutverk innan ríkisstjórnarinnar.

Atvinnuvegaráðherra þykir miður að ungir bændur taki einróma afstöðu gegn Evrópusambandinu. Hún segir bændur á Norðurlöndunum innan ESB vera ánægðari en þeir telji að þeir myndu verða utan þess.

Dóttir konu sem lést í umönnun læknis árið 2019 vonar að Landsrétttur komist að annarri niðurstöðu en héraðsdómur sem vísaði málinu frá.

Fimmtán ár eru frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Ósló. Forsætisráðherra Noregs hvetur landsmenn til að sporna við öfgavæðingu ungmenna og dýrkun á hryðjuverkamönnum. Nýr minnisvarði um fórnarlömb hryðjuverkana hefur verið afhjúpaður.

Hlutfall ungs fólks á leigumarkað er í hærra lagi og vísbendingar eru um að margt ungt fólk hafi farið úr foreldrahúsum í leiguhúsnæði síðastliðið ár.

Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í september. Afturelding vann Fylki í gærkvöld í vítaspyrnukeppni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,