12:42
Gamla kortérið
Gamla kortérið 26 - Davíð Oddsson og Hrafn Gunnlaugsson grínast

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.

Um drykklanga stund hét þáttur sem tveir ungir menn, Hrafn Gunnlaugsson og Davíð Oddsson, sáu um um verslunarmannahelgina 1968. Þátturinn varð mjög umdeilur og í þessu Gamla kortéri er lesið nokkuð úr dómum lesendabréfanna um hann. Því miður hefur þátturinn ekki varðveist í safni RÚV en í staðinn er flutt gamanleikrit sem þeir Hrafn og Davíð sömdu og flutt var í þættinum Spunahljóð fyrr á því sama ári. Óhætt er að segja að leikritið sé mjög í anda absúrdismans.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 16 mín.
,