18:00
Kvöldfréttir útvarps
Trump hótar Írönum, umboðsmaður barna krefst úrbóta, atvinnuleysi eykst, Þórdís Kolbrún um ESB og Sólheimajökull í ham

Fréttir

Fréttir

Verð á hráolíu hækkaði snarpt í dag og fór yfir 95 bandaríkjadali í fyrsta skipti í sex vikur. Bandaríkjaforseti hótar að sprengja eina brú og eitt orkuver fyrir hverja árás Írana á Hormússundi.

Umboðsmaður barna segir ámælisvert að ekki sé farið eftir lögum um eftirlit með fósturbörnum. Ný skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sýni skýrt að eftirliti sé ábótavant.

Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ segir atvinnuástand ekki hafa verið verra síðan í heimsfaraldri. Fimm prósent voru atvinnulaus í júní.

Aðild að Evrópusambandinu er að sjálfsögðu valkostur fyrir Ísland en það er allt annar handleggur hvort það er besti kosturinn, segir fyrrverandi utanríkisráðherra. Íslendingar eigi þó ekki að þykjast vera of fínir til að íhuga það.

Hættulegar aðstæður hafa skapast við Sólheimajökul og aðkoma að jöklinum er orðin erfiðari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer þar um.

Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,