Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Sous la fenêtre, le merisier se balance = The wild cherry tree sways b- Svetlana de Loutchek
Glugginn - Jórunn Viðar/Halldór Laxness - Ásgerður Júníusdóttir og Agnar Már Magnússon. Séð frá tungli 2023
Nú sefur jörðin - Davíð Stefánsson/Sigmar Þór Matthíasson - Ragnheiður Gröndal, Uneven Equator 2024
Njótum afans - Prins Póló (Svavar Pétur Eysteinsson)
Nothin' but a nuthin' - Jimmy Stewart and his Nighthawks
Amor clandestino (feat. Israel Fernández)- Natalia Lafourcade, Cancionera 2025
Mexican shuffle - Herb Alpert
Se me hizo facil - Augustin Lara - Chavela Vargas
Sensemayá - Silvestre Revueltas - Leonard Bernstein og Fílharmónían í New York
Kauyumari - Gabriela Ortiz - Gustavo Dudamel og Fílharmónían í Los Angeles
Un Minuto De Silencio - Angela Aguilar
El Coconito (featuring El David Aguilar) (Barcelata Castro)- Natalia Lafourcade
Ljóð dagsins : Í háum söðli, eftir Erling Sigurðarson frá Grænavatni. Sigfús Bjartmarsson les.
Riddaren - Österlide. Kilden 2023
Ghost Rider in the Sky - Stan Jones - Kalle Kalima trio
Surf Ride - Art Pepper kvartettinn
Ég vildi að ég væri - Davíð Stefánsson/Jón Jónsson frá Hvanná - Álftagerðisbræður
Hveragerði - Afkvæmi guðanna
Hveragerði - Bergþóra Árnadóttir
Ninna Sif Svavarsdóttir spjallar um 80 ára afmæli og bæjarbrag Hveragerðis.
Frigg - Uni/Ragnar Katrínarson - Karlakór Hveragerðis og Seiðlæti
Hver vill ást - Stína Ágústsdóttir/Cole Porter - Jazz á íslensku 2016

07:30

08:30
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur skrifað frá unga aldri. Hann bjóst þá aldrei við því að geta lifað af skrifunum - hvað þá að bækur hans væru seldar í 35 löndum og þýddar á 27 tungumálum. Í dag ferðast hann um heim allan að kynna bækur sínar en finnst þó mikilvægast að gefa sér tíma til að sinna skriftum.


Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Fugl dagsins err á sínum stað hjá okkur í Sumarmálum í dag en við látum það ekki nægja þar sem við ræddum komu farfugla til landsins á vorin við Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Rannsóknir Tómasar og föður hans, Gunnars Tómassonar, leiða í ljós að þótt vor geti verið afar ólík, bæði milli ára og jafnvel innan sama árs, með hretum eða hlýindum á víxl, sýna langtímamælingar engu að síður að loftslag fer hlýnandi, sem veldur því að farfuglar eru fyrr á ferðinni en áður.
Við höfum fengið á miðvikudögum í sumar innslög sem Elísabet Thea Kristjánsdóttir hefur unnið fyrir okkur sem kallast Jeppaþjóðin og í dag var komið að því fjórða í röðinni. Í því kafar Elísabet í tæknilegar hliðar jeppabreytinga og íslensk einkenni þess að aka í snjó. Hún ræddi við Frey Þórsson, sérfræðing á sviðinu, um íslenska fyrirtækið Arctic Trucks og þróun sérútbúinna ökutækja fyrir fjölbreytt not hérlendis en ekki síst erlendis, þar sem íslensk nýsköpun er nýtt við krefjandi aðstæður á afskekktum svæðum víða um heim, líkt og á suðurskautinu og Dubai.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Ljúflingshóll / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jóns Múla Árnason, texti Jónas Árnason)
I'm on Fire / Bruce Springsteen (Bruce Springsteen)
Slow Dancing With The Moon / Dolly Parton (Mac Davis)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Forseti Úkraínu hefur rekið yfirmann hersins eftir fjölmenn mótmæli. Vinsæll varnarmálaráðherra, sem var rekinn í síðustu viku, snýr aftur í nýtt hlutverk innan ríkisstjórnarinnar.
Atvinnuvegaráðherra þykir miður að ungir bændur taki einróma afstöðu gegn Evrópusambandinu. Hún segir bændur á Norðurlöndunum innan ESB vera ánægðari en þeir telji að þeir myndu verða utan þess.
Dóttir konu sem lést í umönnun læknis árið 2019 vonar að Landsrétttur komist að annarri niðurstöðu en héraðsdómur sem vísaði málinu frá.
Fimmtán ár eru frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Ósló. Forsætisráðherra Noregs hvetur landsmenn til að sporna við öfgavæðingu ungmenna og dýrkun á hryðjuverkamönnum. Nýr minnisvarði um fórnarlömb hryðjuverkana hefur verið afhjúpaður.
Hlutfall ungs fólks á leigumarkað er í hærra lagi og vísbendingar eru um að margt ungt fólk hafi farið úr foreldrahúsum í leiguhúsnæði síðastliðið ár.
Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í september. Afturelding vann Fylki í gærkvöld í vítaspyrnukeppni.
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Um drykklanga stund hét þáttur sem tveir ungir menn, Hrafn Gunnlaugsson og Davíð Oddsson, sáu um um verslunarmannahelgina 1968. Þátturinn varð mjög umdeilur og í þessu Gamla kortéri er lesið nokkuð úr dómum lesendabréfanna um hann. Því miður hefur þátturinn ekki varðveist í safni RÚV en í staðinn er flutt gamanleikrit sem þeir Hrafn og Davíð sömdu og flutt var í þættinum Spunahljóð fyrr á því sama ári. Óhætt er að segja að leikritið sé mjög í anda absúrdismans.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Ingi Bjarni Skúlason, Magnús Trygvason Eliassen, Hilmar Jensson, Jormin, Anders - Hægur dans.
Kvintett Miles Davis 1965 - Little one.
Kvintett Red Garland - What is there to say.
Hist og - Straight eyes.
Kvartett víbrafónleikarans Milt Jackson - Stress and trauma.
Duke Ellington & John Coltrane - Stevie.
Erskine, Peter, Jack Magnet Science - Dreams of Delphi.
Kvintett Tony Williams - Gambia.
Besiakow, Ben, Melgaard, Jens, Björn Thoroddsen, Markussen, Uffe, Riel, Alex - Quintet.
Potter, Chris - Dream of home.
Bjarki Sveinbjörnsson fer yfir yfir sögu hljómsveitarinnar og rekur meðal annars hvað aðalhljómsveitarstjórar hennar höfðu að leiðarljósi við störf sín.
Í þættinum verður verður fjallað frekar um píanóleikarann Vladimir Ashkenazy. Við heyrum viðtal sem Margrét Indriðadóttir tók við hjónin, hann og Þórunni Jóhannsdóttur þegar þau komu í fyrsta sinn til Íslands í desember 1962. Ashkenazy hélt tónleika í Haskólabíói, en við heyrum nokkur verk frá þeim tónleikum. Sagt verður frá fyrstu tónleikunum þar sem Ashkenazy stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands, í desember 1971 og samstarf þeirra á 8. áratugnum, og vinslitum.
Verkin sem leikin verða eru:
1. Etýður op. 25 eftir Chopin, 6 fyrstu etýðurnar
2. Suggestion Diboique eftir Prokofjev
3. Vals í des-dúr eftir Chopin
- Í flutningi Askenazys, og
4. Tzigane-konsertrapsódía fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Maurice Ravel. Guðný Guðmundsdóttir leikur einleik á fiðlu en stjórnandi er Jena-Pierre Jacquillat - hljóðritun frá 23. Janúar 1986.
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Larissa Kyzer er bandarískur bókmenntafræðingur og þýðandi úr íslensku yfir á ensku. Hún hefur þýtt fjölda íslenskra skáldsagna, sem margar hverjar hafa hlotið góðar viðtökur, þar má nefna Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Elínu, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Við hringjum til Brooklyn og ræðum þýðingarvinnuna, hvers vegna hún kemur til Íslands, og erindi íslenskra bókmennta við hinn enskumælandi heim.
Svo fáum við annað innslag frá Magnúsi Sigurði Jónassyni, nema í MH, í dag fer hann á rúntinn með borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, og tekur tímann hvað hún er lengi að fá stæði í miðborginni.
Við fræðumst einnig um Hómer og kviður hans í tilefni þess að kvikmynd Christopher Nolan, The Odyssey, er nú í bíó.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða breytingar verða í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.
Fréttir
Fréttir
Verð á hráolíu hækkaði snarpt í dag og fór yfir 95 bandaríkjadali í fyrsta skipti í sex vikur. Bandaríkjaforseti hótar að sprengja eina brú og eitt orkuver fyrir hverja árás Írana á Hormússundi.
Umboðsmaður barna segir ámælisvert að ekki sé farið eftir lögum um eftirlit með fósturbörnum. Ný skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sýni skýrt að eftirliti sé ábótavant.
Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ segir atvinnuástand ekki hafa verið verra síðan í heimsfaraldri. Fimm prósent voru atvinnulaus í júní.
Aðild að Evrópusambandinu er að sjálfsögðu valkostur fyrir Ísland en það er allt annar handleggur hvort það er besti kosturinn, segir fyrrverandi utanríkisráðherra. Íslendingar eigi þó ekki að þykjast vera of fínir til að íhuga það.
Hættulegar aðstæður hafa skapast við Sólheimajökul og aðkoma að jöklinum er orðin erfiðari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer þar um.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Nýjum forseta Sýrlands hefur tekist að ná og halda stjórn í landinu frá því að hann tók völdin í ársbyrjun 2025, eftir árangursríka sókn fjölda uppreisnarsveita undir hans forystu gegn stjórnarher Assads, þáverandi forseta. Hann hefur styrkt stöðu sína og tökin á valdatökunum síðan, frekar en hitt. En hvernig er lífið í Sýrlandi í dag?
Spegillinn grennslaðist fyrir um það og rætt var við Magneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason

frá Veðurstofu Íslands
Hljóðritun frá kammertónleikum sem fram fóru í KoncertKirken menningarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn 18. júní á tónlistarhátíðinni Festival&Friends.
Á efnisskrá:
-Píanótríó eftir Bedrich Smetana.
-Flautusónata eftir Francis Poulenc.
-Píanókvintett nr. 1 eftir Grazynu Bacewicz.
Flytjendur: Fiðluleikaranir Ludvig Gudim og Anna Agafia, Michael Grolid víóluleikari, sellóleikaranir Jonathan Swensen og Cansin Kara, píanóleikarnarnir Gustav Piekut og Sergei Redkin og flautuleikarinn Otilia Zielke.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Fugl dagsins err á sínum stað hjá okkur í Sumarmálum í dag en við látum það ekki nægja þar sem við ræddum komu farfugla til landsins á vorin við Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Rannsóknir Tómasar og föður hans, Gunnars Tómassonar, leiða í ljós að þótt vor geti verið afar ólík, bæði milli ára og jafnvel innan sama árs, með hretum eða hlýindum á víxl, sýna langtímamælingar engu að síður að loftslag fer hlýnandi, sem veldur því að farfuglar eru fyrr á ferðinni en áður.
Við höfum fengið á miðvikudögum í sumar innslög sem Elísabet Thea Kristjánsdóttir hefur unnið fyrir okkur sem kallast Jeppaþjóðin og í dag var komið að því fjórða í röðinni. Í því kafar Elísabet í tæknilegar hliðar jeppabreytinga og íslensk einkenni þess að aka í snjó. Hún ræddi við Frey Þórsson, sérfræðing á sviðinu, um íslenska fyrirtækið Arctic Trucks og þróun sérútbúinna ökutækja fyrir fjölbreytt not hérlendis en ekki síst erlendis, þar sem íslensk nýsköpun er nýtt við krefjandi aðstæður á afskekktum svæðum víða um heim, líkt og á suðurskautinu og Dubai.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Ljúflingshóll / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jóns Múla Árnason, texti Jónas Árnason)
I'm on Fire / Bruce Springsteen (Bruce Springsteen)
Slow Dancing With The Moon / Dolly Parton (Mac Davis)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Larissa Kyzer er bandarískur bókmenntafræðingur og þýðandi úr íslensku yfir á ensku. Hún hefur þýtt fjölda íslenskra skáldsagna, sem margar hverjar hafa hlotið góðar viðtökur, þar má nefna Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Elínu, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Við hringjum til Brooklyn og ræðum þýðingarvinnuna, hvers vegna hún kemur til Íslands, og erindi íslenskra bókmennta við hinn enskumælandi heim.
Svo fáum við annað innslag frá Magnúsi Sigurði Jónassyni, nema í MH, í dag fer hann á rúntinn með borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, og tekur tímann hvað hún er lengi að fá stæði í miðborginni.
Við fræðumst einnig um Hómer og kviður hans í tilefni þess að kvikmynd Christopher Nolan, The Odyssey, er nú í bíó.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða breytingar verða í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Síðustu vikur hafa viðmælendur deilt með okkur og hlustendum ýmsum heillaráðum þegar kemur að ferðalögum sumarsins. Hvernig er rétt að bera sig að þegar haldið er af stað í útilegur eða fjallgöngur, hvað er vert að hafa í nestiskörfunni og hvernig á maður að haga sér í umferðinni? Þegar kemur að náttúrunni þá er vitaskuld vert að ganga um hana með virðingu, svo ekki sé talað um blessuðu dýrin. Þorkell Heiðarsson er formaður FÍN (Félags íslenskra náttúrufræðinga) og heimsótti Rás 2 í fyrrasumar með sín reglulegu Náttúruspjöll. Við spurðum Þorkel um stöðu hafarnarins á íslandi og sömuleiðis um blessuðu branduglurnar ... og eiruglur.
Það voraði snemma fyrir vestan, á Barðaströndinni og var það vel merkjanlegt á fjölgun farþega og bíla með ferjunni Baldri til og frá Brjánslæk. Tugir bíla fluttir fram og til baka og enn var bara byrjun júní. Sumarið komið óvenju snemma og bjartsýni í kortunum þegar Vestmannaeyjaferjan Herjólfur bilaði og því Baldur kallaður til aðstoðar. Ekki var vitað um hversu langt skeið Baldur yrði frá inn í sumarið og óvissan virðist enn við lýði. Þetta hefur Halldóra Ingibjörg Ragnarsdóttir bent á, meðal annars með skrifum í miðla og við tókum stöðuna með henni nú þegar hillir undir júlílok.
Það hafa orðið talsverðar vendingar í breskum stjórnmálum á síðustu misserum, þegar Keir Starmer sagði formlega af sér sem forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins og nýr forsætisráðherra settur formlega í embætti í upphafi vikunnar. Andy Burnham, heitir sá og fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins. Hann er sá sjöundi sem tekur við síðan Bretland yfirgaf Evrópusambandið og sá fjórði síðan Karl konungur tók við árið 2022. Það er því forvitnilegt að fylgjast með áherslum Burnham og ljóst að verkefni hans eru ærin. Salka Margrét Sigurðardóttir er stjórnmálafræðingur sem búið hefur í Lundúnum um skeið og unnið fyrir ýmis bresk ráðuneyti síðustu 11 ár og hún var á línunni.
Tónlistarhátíðin Bræðslan er á sínum stað um komandi helgi, laugardaginn 25. júlí á Borgarfirði eystri og þar munu meðal annarra koma þau Ásgeir Trausti, tónlistarkonan Raven, Land og synir, Skandall, Greifarnir og síðast en ekki síst dúettinn Sólstrandargæjarnir sem skutust upp á stjörnuhiminn um miðjan tíunda áratug síðustu aldar með laginu Rangur maður, lagi sem er orðin sígild perla og eflaust sungin á tjaldsvæðum landsins þetta sumarið eins og frá því það kom út. Það stendur mikið til hjá öðrum forsprakka sveitarinnar, Jónasi Sigurðssyni en fyrir utan þessa endurkomu Sólstrandargæjanna þá er hann að undirbúa eins konar hæglætishátíð um verslunarmannahelgina í Hveragerði.
„Það er auðvelt að finna fyrir pressu þegar gera skal sumarið „fullkomið“ fyrir börnin. En flest börn þurfa ekki endalausa dagskrá eða skemmtun. Þau þurfa öryggi, tengsl og smá rútínu – jafnvel í sumarfríinu,“ þetta segir Mekkín Barkardóttir, ung þriggja barna móðir og hjúkrunarfræðingur úr ungbarnavernd í Stokkhólmi sem deilir gjarnan heillaráðum á samfélagsmiðlum, m.a. Instagram en við hnutum einmitt um sex ráð þar sem gætu gert sumarfrísdaga barnafjölskyldna bærilegri. Við heyrðum í Mekkín í þættinum.

07:30

08:30


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Forseti Úkraínu hefur rekið yfirmann hersins eftir fjölmenn mótmæli. Vinsæll varnarmálaráðherra, sem var rekinn í síðustu viku, snýr aftur í nýtt hlutverk innan ríkisstjórnarinnar.
Atvinnuvegaráðherra þykir miður að ungir bændur taki einróma afstöðu gegn Evrópusambandinu. Hún segir bændur á Norðurlöndunum innan ESB vera ánægðari en þeir telji að þeir myndu verða utan þess.
Dóttir konu sem lést í umönnun læknis árið 2019 vonar að Landsrétttur komist að annarri niðurstöðu en héraðsdómur sem vísaði málinu frá.
Fimmtán ár eru frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Ósló. Forsætisráðherra Noregs hvetur landsmenn til að sporna við öfgavæðingu ungmenna og dýrkun á hryðjuverkamönnum. Nýr minnisvarði um fórnarlömb hryðjuverkana hefur verið afhjúpaður.
Hlutfall ungs fólks á leigumarkað er í hærra lagi og vísbendingar eru um að margt ungt fólk hafi farið úr foreldrahúsum í leiguhúsnæði síðastliðið ár.
Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í september. Afturelding vann Fylki í gærkvöld í vítaspyrnukeppni.
Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.
Margrét reyndi af veikum mætti að halda í gleðina í lægðinni. Ragnheiður Nína bráðum sjö ára var gestastjórnandi. Ragnhildur Vigfúsdóttir átti sumartvennu dagsins og S7yndir með Önyu Shaddock er plata vikunnar. 1985 var alls ráðandi síðasta klukkutíma Vasadiskósins.
Stuðmenn, Eggert Þorleifsson - Dúddi ráðd'okkur heilt
Birna Eyfjörð - Leiddu mig
KT Tunstall - Black Horse and the Cherry Tree
Árný Margrét - Hakk og spaghettí
Marvin Gaye - What's Going On
RAYE - WHERE IS MY HUSBAND!
Malen Áskelsdóttir - Ready Now
Stebbi JAK - Dönsum inn í hljóða nótt
Diddú - Stella í orlofi
The Cure - Lovesong
Anya Hrund Shaddock - PÓKER
James - Laid
Burna Boy, Shakira - Dai Dai
Quarashi - Do It Again
Ásgeir Trausti Einarsson - Skýjaborg
Moses Hightower - Húsið mitt
Sprengjuhöllin - Glúmur
La Roux - Quicksand
Mollý - Mine
Emilíana Torrini - Miss Flower
Sumartvennan frá Ragnhildi Vigfúsdóttur:
Vigdís Hafliðadóttir, Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir - Sumarvísa
Vilberg Pálsson - Þegar sól gyllir landið
The Knife - Heartbeats
Lily Allen - LDN
Sabrina Carpenter - When Did You Get Hot
Hjálmar - Hvað gera fjöllin?
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina
Lorde - Royals
Sjana Rut - Tell Me
Nostalgíuklukkutími: 1985
Eiríkur Hauksson - Gaggó Vest (Í minningunni)
Mannakorn - Á rauðu ljósi
Edda Heiðrún Backman - Þar sem allt grær
Bryan Adams - Heaven
Herbert Guðmundsson - Can't Walk Away
Smartbandið - Lalíf
Laddi - Tóti Tölvukall
A-ha - Take On Me
Simple Minds - Don't You (Forget About Me)
Ragnhildur Gísladóttir - Fegurðardrottning
Stuðmenn - Ég vild'ég væri
Wham! - Wake Me Up Before You Go-Go
Madonna - Like a Virgin
Foreigner - I Want to Know What Love Is
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.
Ferjan Baldur snýr heim á morgun og hefur siglingar um Breiðafjörð á ný á föstudag. Brotthvarf hennar hefur haft veruleg áhrif á ferðaþjónustu og aðra atvinnustarfsemi á svæðinu. Ferðamönnum hefur fækkað svo um munar og þjónusta við íbúa verið minni. En nú sér fyrir endann á þessu. Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar var á línunni.
Samheldni er nýr átakssjóður sem ætlað er að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum á meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi. Samherji stendur að stofnun sjóðsins og mun árlega leggja fram 20 milljónir króna næstu fimm árin. Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja kom til okkar.
Götubitahátíðin var haldin í Hljómskólagarðinum síðustu helgi. Tasty hreppti verðlaun fyrir besta smábitann að þessu sinni. Pétur Jónsson og Sveinn Sævarsson kíktu til okkar með besta smábitann 2026.
Markmið Öræfaskólans er að stuðla að þekkingu auknu aðgengi ungmenna að vettvangsmiðaðri fræðslu um loftslags- og jöklabreytingar en jafnframt að kynna fjölbreytta útivistarmöguleika og starfsvettvang tengda jöklum. Í samstarfi við Jöklarannsóknafélag Íslands bjóða þau upp á námskeið fyrir 18-25 ára nú í sumar. Erla Guðný Helgadóttir var á línunni og sagði okkur frá þessum nýja skóla.
Steiney var á ferðinni um Norðurland síðustu daga og kíkti meðal annars í Sjóböðin á Húsavík. Sjóböðin voru upprunalega tankur sem borhola með heitu sjóvatni streymdi í og heimamenn flyktust að til að baða sig í. Steiney spjallaði við Helgu Björgu Sigurðardóttur hjá Sjóböðunum.
Bjarni Snæbjörnsson hefur verið að gifta fólk á vegum siðmennt vítt og breytt um land auk þess sem hann byrjaði með blómabíl nú í sumar. Bjarni var á línunni hjá okkur á en hann er staddur á Tálknafirði þar sem Tálknafjör verður haldið um helgina.
Fréttir
Fréttir
Verð á hráolíu hækkaði snarpt í dag og fór yfir 95 bandaríkjadali í fyrsta skipti í sex vikur. Bandaríkjaforseti hótar að sprengja eina brú og eitt orkuver fyrir hverja árás Írana á Hormússundi.
Umboðsmaður barna segir ámælisvert að ekki sé farið eftir lögum um eftirlit með fósturbörnum. Ný skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sýni skýrt að eftirliti sé ábótavant.
Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ segir atvinnuástand ekki hafa verið verra síðan í heimsfaraldri. Fimm prósent voru atvinnulaus í júní.
Aðild að Evrópusambandinu er að sjálfsögðu valkostur fyrir Ísland en það er allt annar handleggur hvort það er besti kosturinn, segir fyrrverandi utanríkisráðherra. Íslendingar eigi þó ekki að þykjast vera of fínir til að íhuga það.
Hættulegar aðstæður hafa skapast við Sólheimajökul og aðkoma að jöklinum er orðin erfiðari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer þar um.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Nýjum forseta Sýrlands hefur tekist að ná og halda stjórn í landinu frá því að hann tók völdin í ársbyrjun 2025, eftir árangursríka sókn fjölda uppreisnarsveita undir hans forystu gegn stjórnarher Assads, þáverandi forseta. Hann hefur styrkt stöðu sína og tökin á valdatökunum síðan, frekar en hitt. En hvernig er lífið í Sýrlandi í dag?
Spegillinn grennslaðist fyrir um það og rætt var við Magneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Maron Birnir, Luigi - BERDREYMI.
Pet Shop Boys - Left to my own devices.
Pawsa - TOO COOL TO BE CARELESS.
Calvin Harris, Jazzy - Satisfy.
Moses Hightower - Húsið mitt.
Frank Ocean - Pink + White.
Steinunn Jónsdóttir - Spóla til baka.
Djo - End of Beginning.
Fike, Dominic - Babydoll.
In Color - Headlights.
Kaktus Einarsson - Glycerine.
New Order - 60 miles an hour.
Warmland - Violet Dreams.
The Temper Trap - Sweet Disposition.
Daði Freyr - I'm Out and I Wanna Go Home.
Chemical Brothers, The - Go.
UNDERWORLD - Dark And Long (Dark Train).
PinkPantheress - Illegal (bonus track).
YUNGAMLI - PUNGUR Á KLÚBBNUM.
Ásgeir Trausti - Skýjaborg.
Zach Bryan, Musgraves, Kacey - I Remember Everything.
Mumford and Sons, Chris Stapleton - Here.
Ella Langley - Be Her.
R.E.M. - Leaving New York.
Dexter and The Moonrocks - Freakin' Out.
Tame Impala - Hummer
Alabama Shakes - I Feel Hope Coming
Aldous Harding - Venus in the Zinnia
Smashing Pumpkins - Disarm
Olivia Rodrigo - The Cure
The Cure - Cut Here
Hipsumhaps - Meðal mannsins


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.