Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

14. desember 1988

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Böðvar Yngva Jakobsson, sem er þekktur fyrir snúa orðum aftur á bak, og hljómsveitin Hunangstunglið með Geira Sæm flytur lagið Froðan. Sýndir eru fisléttir brandarar frá áhorfendum í brandarakeppni, og Haukur Sveinbjarnarson leikur polku eftir Axel Einarsson þar sem Barði Ólafsson syngur. Bandaríska söngkonan Shady Owens flytur lagið When I Fall in Love, og Gísli Rúnar Jónsson skemmtir áhorfendum í hlutverki útvarpsstjóra. Hópurinn Kamarorghestar flytur tónlistaratriðið Grímfreður og falin myndavél sýnir uppátæki tengd „Glasgow-bitum“. Bubbi Morthens og Megas koma í viðtal til Hemma og flytja síðan lagið Eitt glas, fimmtán glös í beinni útsendingu. lokum kemur Elsa Lund í spjall við Hemma.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 14. desember 1988.

Birt

24. apríl 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,