Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

25. nóvember 1987

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Gunnlaug Briem, trommuleikara í hljómsveitinni Módel, sem flytur lagið Ástarbréf. Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi íþróttamaður, reynir þekkja „pokamanninn“, sem reynist vera spjótkastarinn Einar Vilhjálmsson. Fiðluleikarinn Szymon Kuran leikur jazzlag með hljómsveit þáttarins og spjallar við Hemma, og Anna Margrét Jónsdóttir, fegurðardrottning, kemur í viðtal. Þorvaldur Halldórsson syngur lagið Á sjó og ræðir síðan við Hemma, og í Frétt vikunnar gera Örn Árnason og Jóhannes Kristjánsson grín byggingu ráðhússins. Módel flytur einnig lagið Hægt og hljótt eftir Valgeir Guðjónsson, og suður-ameríski listamaðurinn Manú syngur lagið My Life eftir Billy Joel með hljómsveit þáttarins. Þá fara fram atriði úr Grettukeppninni, Bjarni Tryggva syngur Hægt og hljótt á færeysku og lokum flytja Þorvaldur Halldórsson og Manú saman sálmasyrpu með hljómsveitinni.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. nóvember 1987.

Birt

6. feb. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,