Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

16. nóvember 1988

Í þættinum kemur Klara Íris Vigfúsdóttir í viðtal og syngur lagið Allir krakkar, og Magnús Ólafsson flytur lagið Lækkaðu ljósin. Hrafnkell Helgason tekur þátt í spurningaleik og Herdís Hallvarðsdóttir kemur í viðtal áður en hún syngur lagið Eyja af fljóti af plötunni Gullfiskarnir. Georg Eistaná ræðir við Hemma og Viking Band flytur lagið Syðradal. Falin myndavél er á sínum stað með gríninnslagi, og Helgi Björnsson kemur í spjall áður en hann flytur lagið Geta pabbar ekki grátið með Síðan skein sól. Ulla Bjarkan, í túlkun Eddu Björgvinsdóttur, ræðir kynlífsfræðslu, Jóhann G. Jóhannsson syngur lagið Vinur, og Þórhallur Sigurðsson bregður sér í hlutverk Búningadömunnar. lokum sameinast allir í fjöldasöng og flytja lagið er lag á mér.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 16. nóvember 1988.

Birt

10. apríl 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,