Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

30. desember 1987

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við bóndann og eftirhermuna Hjört Benediktsson, sem hermir meðal annars eftir ráðherrum. Feðginin Einar Júlíusson og Ólöf Hafdís Einarsdóttir flytja lag, og úrslit fara fram í Grettukeppni þar sem dómnefndin Ómar Ragnarsson, Ólafía Áskelsdóttir og Bára Kristinsdóttir fylgist með keppendum gretta sig. Danshópurinn Dansnýjung Kollu sýnir dansinn Lifandi dauð, og Guðmundur S. Jónasson ræðir um spádóma og bók sína Spádómar Nostradamusar. Leone Tinganelli syngur ítalskt lag og Braggablús á ítölsku, og Guðmundur Einarsson, fyrrverandi þingmaður, kemur í viðtal og tekur einnig lag. Sterkasti maður heims, Jón Páll Sigmarsson, kemur í heimsókn og blæs upp hitapoka þar til hann springur. lokum eru verðlaun afhent í grettukeppninni þar sem Borghildur Kristjánsdóttir og Guðfreður Jóhannesson bera sigur úr býtum, Völva Súgandafjarðar í túlkun Eddu Björgvinsdóttur spáir í framtíðina og Hjörtur Benediktsson flytur lagasyrpu.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. desember 1987.

Birt

20. feb. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,