Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

2. nóvember 1988

Í þættinum kemur Elsa Lund, í túlkun Ladda, og aðstoðar Hemma við fataval. Gestur þáttarins er Haukur Gunnarsson, ólympíumeistari, sem ræðir við Hemma. Hljómsveitin Gildran flytur lagið Ævisagan, og Hrafnkell Helgason læknir svarar spurningum úr Sturlungu í spurningakeppni þar sem hann vinnur flugferð innanlands. Valdimar Örn Flygenring flytur lagið Hvílíkur maður úr söngleiknum Síldin kemur með Sigrúnu Eddu Björnsdóttur og Hönnu Maríu Karlsdóttur, sem síðar syngja einnig lagið Annálaðar smekkkonur úr sama söngleik. Markús Hrafn Óttar Ragnarsson, í túlkun Gísla Rúnars Jónssonar, segir frá vetrardagskrá sjónvarpsins, og Sverrir Stormsker spjallar við Hemma og flytur lagið Fullorðinn og orðinn fullur með Rakel Axelsdóttur og barnakór. Falin myndavél fylgir Hilmar Kristinssyni sem leikur sjóndapran mann í banka og biður viðskiptavini um aðstoð. Elsa Lund birtist aftur á sviðinu og lokum flytur Bítlavinafélagið lagið Léttur í lundu eftir Karl Hermannsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. nóvember 1988.

Birt

3. apríl 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,