Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

9. desember 1987

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við Ingibjörgu Þorbergs, og Halla Margrét Árnadóttir flytur lag Ingibjargar við Jólaþulu eftir Ólöfu Jónsdóttur. Einar Vilhjálmsson syngur og leikur eigið lag á gítar, og ungi gítarleikarinn Pétur Jónasson flytur tónverk áður en hann ræðir við Hemma. Óperusöngvarinn Kristján Jóhannsson kemur í heimsókn til spjalls, og strengjakvartett úr Íslensku hljómsveitinni flytur lag eftir Scott Joplin. Bubbi Morthens ræðir við Hemma og flytur lagið Í frelsarans slóð, og þátttakendur í grettukeppni láta sjá sig á sviðinu. Laddi skemmtir með gríni og glensi og syngur Það er fjör, þjóðhátíðarlag Vestmannaeyinga. lokum koma Boney M. fram og syngja lagið Mary’s Boy Child, og Bjössi Emils færir Hemma afmælistertu.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. desember 1987.

Birt

13. feb. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,