Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

11. nóvember 1987

Í þættinum kemur Bjarni Arason söngvari í stutt spjall við Hemma Gunn, og Páll Eiríksson segir frá hundunum sínum sem hann hefur með sér í heimsókn. Hemmi spjallar einnig við áhorfendur um ýmislegt, meðal annars heimsmet, áður en Örn Ómarsson kemur í viðtal og flytur tónlistaratriði á hljómborð og söng. Eyjólfur Kristjánsson syngur lag eftir Örn við undirleik hljómsveitarinnar, og Helgi Daníelsson rannsóknarlögreglumaður reynir þekkja „pokamanninn“, sem reynist vera Hólmfríður Karlsdóttir. Hjálmar Gíslason ræðir við Hemma og flytur síðan skemmtiatriði á sviðinu. Í Frétt vikunnar gera Randver Þorláksson og Jóhannes Kristjánsson grín í hlutverkum Ómars Ragnarssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Bjarni Arason syngur einnig tvö lög, Ólafur Laufdal kemur í viðtal og Bjartmar Guðlaugsson spjallar við Hemma og leikur á gítar. Þá fer fram Grettukeppni þar sem keppendur gretta sig fyrir áhorfendum, þrír nemendur úr Verslunarskóla Íslands keppa í skyráti og lokum kveður Hemmi áhorfendur og boðar næsta þátt.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 11. nóvember 1987.

Birt

30. jan. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,