Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

2. mars 1988

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við myndlistarmanninn Guðberg Auðunsson, sem tekur einnig lag fyrir áhorfendur. Monika Abendroth leikur á hörpu og Pétur Þorvaldsson á selló, meðal annars Svaninn úr svítunni Hátíð dýranna og Nótt eftir Árna Thorsteinsson. Guðmundur Pétursson leikur blús af fingrum fram á gítar með hljómsveit þáttarins, og Hjörtur Benediktsson eftirherma grípur inn í dagskrána með „skilaboðum“ frá Þorsteini Pálssyni forsætisráðherra. Krúttmagar frá Akureyri koma fram, þar sem Herdís Ingvadóttir er í viðtali og þrír krúttmagar sýna krúttmagadans. Felix Bergsson, aðalsöngvari Greifanna, ræðir við Hemma og hljómsveitin flytur lag, og Sólveig Birgisdóttir syngur lög úr söngleikjum. Fimleikamaðurinn Djibrilcu Sogue frá Senegal sýnir listir sínar og lokum bregður Hjörtur Benediktsson sér í gervi Megasar og flytur lagið Lóa, Lóa.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. mars 1988.

Birt

20. mars 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,