Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

17. febrúar 1988

Í þættinum teflir stórmeistarinn Jóhann Hjartarson blindskák við Hall Hallsson fréttamann, með Jóni L. Árnasyni sem skákskýranda, og jafnframt er rætt við Jóhann. Stefán Hilmarsson flytur eitt lag og Ragnhildur Gísladóttir og Jakob Frímann Magnússon syngja saman. Í ræðukeppni ræða Einar Páll Tamini, nemi í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, og Andri Hauksson, nemi í Menntaskólanum í Reykjavík, um þáttinn Á tali. Feðgarnir Guðmundur Steingrímsson og Steingrímur Guðmundsson leika slagverksdúó og Jóhannes Kristjánsson eftirherma hermir eftir Halli Hallssyni og tekur viðtal við Jón L. Árnason. Bandaríski dávaldurinn John Palmer heimsækir þáttinn og dáleiðir fjögur ungmenni, Guðrún Oddsdóttir frá Sauðárkróki syngur lag og lokum sýnir Royal Ballet of Senegal dansatriði.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 17. febrúar 1988.

Birt

6. mars 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,