Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Ich bin dein Mensch og Tinna Hrafnsdóttir leikstjóri

Þýska kvikmyndin Ich bin dein Mensch, eða Ég er þinn, í leikstjórn Mariu Schrader, segir frá rannsóknarkonu sem fær það verkefni prufukeyra vélmenni sem hefur verið forritað til þess eins gera hana hamingjusama. Pálmi Freyr Hauksson, leikstjóri og handritshöfundur, veltir fyrir sér spurningum um siðferðislega tilvist vélmenna og hvert gagn þeirra geti verið.

Síðar í þættinum er rætt við Tinnu Hrafnsdóttur. Hún hefur borið ýmsa hatta á ferlinum því hún er bæði leikkona, leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi. Hún segir frá óhefðbundinni leið sinni í leikstjórastólinn sem hún bjóst í raun aldrei við eigna sér.

Frumflutt

26. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Linsan beinir sjónum sínum konum í kvikmyndagerð, afrekum þeirra og reynslu. Fjallað er um hinar ýmsu kvikmyndir sem gerðar hafa verið af konum og hafa sett mark sitt spjöld sögunnar.

Umsjón: Anna María Björnsdóttir.

Þættir

,