Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Pleasure og Kristín Lea Sigríðardóttir nándarþjálfi

Í kjölfar #MeToo-bylgjunnar hefur áhersla á virðingu og traust í kvikmyndageiranum aukist til muna og hafa störf eins og nándarþjálfun sprottið upp. Rætt er við Kristínu Leu Sigríðardóttur, fyrsta og eina starfandi nándarþjálfann á landinu, um starfið og mikilvægi þess.

Kvikmyndin Pleasure, eða Nautnir, frá árinu 2021 í leikstjórn Ninju Thyberg er einnig til umfjöllunar. Snædís Björnsdóttir bókmenntafræðingur ræðir hvernig þessi saga um sænska stúlku sem dreymir um verða klámmyndastjarna varpar ljósi á stéttaskiptingu, kynþáttafordóma, vináttusambönd og ekki síst mikilvægi samþykkis og trausts.

Frumflutt

12. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Linsan - Konur í kvikmyndagerð

Linsan beinir sjónum sínum konum í kvikmyndagerð, afrekum þeirra og reynslu. Fjallað er um hinar ýmsu kvikmyndir sem gerðar hafa verið af konum og hafa sett mark sitt spjöld sögunnar.

Umsjón: Anna María Björnsdóttir.

Þættir

,