22:10
Litla flugan
Björn R. Einarsson
Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn er tileinkaður básúnuleikaranum, harmóníkuleikaranum, hljómsveitarstjóranum og söngvaranum Birni R. Einarssyni, sem lést 19. maí sl. Leiknar verða hljóðritanir með Birni og hljómsveit hans frá sjötta áratugnum: lög af útgefnum 78-snúninga plötum frá HSH og Tónika, og gamlar innanhússupptökur Ríkisútvarpsins með danslögum úr útvarpssal við Austurvöll. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Er aðgengilegt til 25. október 2024.
Lengd: 38 mín.
e
Endurflutt.
,