08:05
Fram og til baka
Björn Kristjánsson er Borko
Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Gestur Felix á ljúfum laugardagsmorgni var kennarinn og tónlistarmaðurinn Björn Kristjánsson sem gengur líka undir listamannsnafninu Borko. Björn talaði um fimm hátíðir sem hann hefur komið að því að halda og þar kenndi margra grasa. Hann talaði um Innipúkann, Listahátíðina Krútt, Sumarmölina, Hæglætishátíð og klykkti svo út með Pallanum 2013. Þá var ný ábreiða af laginu Útihátíð leikin en hún er nú flutt af hljómsveitinni sem Borko spilar og syngur með, FM Belfast.

Þema dagsins í tónlistinni var hiti í tilefni af Bræðslunni sem haldin er í Borgarfirði eystri.

tónlist:

Sú ást er heit - Magnús og Jóhann

Haustpeysan - Borko

floating on a moment - Beth Gibbons

Útihátíð - FM Belfast

Funheitur - Pláhnetan

Cooler than me - Mike Posner

Hot hot hot - The Cure

Bráðna - Frumburður og Daniil

You sexy thing - Hot Chocolate

Fullkominn dagur til að kveikja í sér - Emmsjé Gauti, Björn Jörundur og Fjallabræður

Girl on fire - Alicia Keys

Hot love - T REx

Hoppum út í heita sól - Matti Matt

Hot Milf Summer - Reykjavíkurdætur

Fingur - Írafár

Gemmér Gemmér - Iceguys

Er aðgengilegt til 27. júlí 2025.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,