Í þættinum er fjallað um 68-kynslóðina.
Lesið úr frásögn Einars Más Jónssonar af atburðunum í París í maí 1968, sem birtist í greinum í Þjóðviljanum í júní sama ár.
Umsjón Jón Hallur Stefánsson.
Lesari í þættinum Magnús Ragnarsson.
(Áður á dagskrá 1998)
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Parasambönd eru ekki alltaf tekin út með sældinni. Skin og skúrir skiptast á og róðurinn getur verið þungur. Þegar þannig er í pottinn búið er mikilvægt að fá góða leiðsögn. Þerapistinn Jónína Guðmann fær til sín góað gesti í hlaðvarpinu Ástarvitanum sem þurfa á aðstoð að halda í ólgusjó ástarlífsins.
Enn og aftur þarf Jónína að hjálpa pari með ólíkar áherslur í sambandinu. Þóra virðist setja vinnuna í fyrsta sæti og Kasper, maðurinn hennar, er ekki alls kostar ánægður með það.
Jónína Guðmann: Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Kasper: Björn Stefánsson
Þóra: Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Jakob: Baldur Davíðsson
Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson
Handrit: Guðmundur Felixson og Ylfa Ösp Áskelsdóttir
Leikstjóri: Eva Halldóra Guðmundsdóttir
Framleiðsla: Úvarpsleikhúsið
![Vikulokin](/spilari/DarkGray_image.png)
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
![Síðasta lag fyrir fréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Íslenskt lag eða tónverk.
![Hádegisfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Heimskviður](/spilari/DarkGray_image.png)
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því að setja fjármuni í íþróttir víða um heim til að bæta ímynd sína. Þetta hefur víða heppnast vel frá þeirra sjónarhóli. Eitt dæmi um þetta er að síðasta sumar komu margir af bestu knattspyrnumönnum heims í lið í sádiarabísku deildinni gegn himinháum launum. Sú tilraun virðist ekki ganga vel og farið er að bera á ósætti og jafnvel brotthvarfi leikmanna. Hallgrímur Indriðason skoðaði málið fyrr í vetur.
Við fjölluðum í vetur um sögu einnar þekktustu fjölskyldu Noregs, kannski fyrir utan konungsfjölskylduna. Það er Ingibrigtsen fjölskyldan en í henni eru þrír af heimsins bestu hlaupurum og þeir sökuðu á dögunum föður sinn, sem hefur þjálfað þá frá barnæsku, um að beita sig andlegu og líkamlegu ofbeldi frá því þeir voru smástrákar. Lögreglurannsókn stendur nú yfir og þetta hefur klofið fjölskylduna sem norska þjóðin hefur fylgt síðustu ár í sjónvarpsþáttunum Team Ingebrigtsen. Yngsti bróðirinn, Jacob, er einn besti hlaupari sem Norðmenn hafa alið og er mættur til Parísar þar sem hann stefnir að því að verja ólympíumeistaratitilinn í 1500 metra hlaupi og gerir það án pabba síns. Hann var formlega ákærður í vor en meint brot beinast ekki að hlaupabræðrunum heldur yngri systkinum þeirra, sem hann er sakaður um að beita bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi. Og það verður líklega réttað í málinu í lok sumars eða í haust. Við rifjum upp baksögu þessa máls.
Á slóðum píanóleikarans Glenns Gould í Toronto.
Kanadíski píanóleikarinn Glenn Gould er af mörgum talinn einn merkasti tónlistarmaður 20. aldar, en samt hætti hann að leika á tónleikum aðeins þrjátíu og eins árs gamall og einbeitti sér eftir það að vinnu í hljóðverinu. Gould hóf tónlist sumra tónskálda upp til skýjanna og var til dæmis þekktur fyrir túlkun sína á verkum Bachs en leit um leið niður á önnur vel þekkt tónskáld píanóbókmenntanna. Gould var líka merkilegur fjölmiðlamaður og þekktur fyrir ýmsa sérvisku í sínu daglega lífi. Rætt er við nokkra af samferðamönnum Glenns Gould en þá hitti umsjónarmaður í heimaborg píanistans Toronto vorið 2023.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Viðmælendur í þessum þætti: Lorne Tulk, Tom Shipton, Colin Eatock, Christopher Brands.
Umsjón: Guðni Tómasson.
![Það bar helst til tíðinda](/spilari/DarkGray_image.png)
Í þáttunum eru rifjaðir upp nokkrir atburðir fyrri tíðar hér á landi og settir fram eins og um nútíma fréttir sé að ræða.
Fréttalesarar eru Sigvaldi Júlíusson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Hermann Sveinbjörnsson.
Umsjónarmaður: Jón Gauti Jónsson.
Í þættinum eru rifjaðir upp nokkrir atburðir 18. aldar í anda hefðbundins fréttatíma.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir veltir fyrir sér sögu manns og menningar og ræðir við fræðafólk um sitthvað forvitnilegt.
(Áður á dagskrá 2007)
Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur segir frá rannsókn sinni á íslenskum bænaskrám, einkum frá 19. öld, og þeirri sögu sem þær hafa að geyma.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir les brot úr tveimur slíkum skrám.
![Síðdegisfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Hernámsárin stóðu yfir á árunum 1940-1945 og voru einn örlagaríkasti tími þjóðarinnar. Í þessari þáttaröð verður saga tímabilsins sögð af sjónarhóli þeirra sem þá voru á æskuárum. Hvernig upplifði unga fólkið hernámið, hver voru samskiptin við herinn og hvaða áhrif hafði hernámið á æskulýðinn? Leifur Reynisson dregur fram munnlegar frásagnir víða um land og fléttar saman við samtímaupptökur og tónlist tímabilsins.
Í öðrum þætti er dregin upp mynd af athöfnum hersins og stríðsógnum sem Íslendingar stóðu frammi fyrir. Meðal annars er sagt frá hergöngum, heræfingum, loftvörnum og hernaðaraðgerðum Þjóðverja hér við land. Þá gera sjónarvottar grein fyrir heimsókn forsætisráðherra Breta, Winston Churchill, en koma hans vakti að vonum mikla athygli.
Viðmælendur eru: Adolf Bjarnason, Árni Valur Viggósson, Björn Sigurbjörnsson, Frantz Pétursson, Guðmundur Einarsson, Hafsteinn Flórentsson, Ingibjörg Árelíusardóttir, Jón Sigvaldason, Magnús Erlendsson, Sigurður Jóhannesson, Sigurjón Björnsson, Sigurjón Vilhjálmsson, Vigdís Jack og Þórunn Melsteð.
Umsjón og dagskrárgerð: Leifur Reynisson. Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
Ljósmynd: Minjasafnið á Akureyri.
![Söngvar af sviði](/spilari/DarkGray_image.png)
Fjallað um nokkra söngleiki sem settir hafa verið upp hér á landi.
Umsjón: Viðar Eggertsson.
(Áður á dagskrá 2007)
Fjallað er um Skugga-Svein eftir Matthías Jochumsson og einkum flutt tónlistin, bæði íslensk og erlend lög, þjóðlög og lög eftir Þórarinn Guðmundsson og Karl O. Runólfsson.
Fluttar eru upptökur Útvarpsleikhússins sem frumflutt var 2005. Leikstjóri: Viðar Eggertsson. Tónlistarstjóri: Þórður Magnússon. Söngstjóri: Sverrir Guðjónsson. Tónlistarráðgjafi: Una Margrét Jónsdóttir. Upptökustjóri: Hjörtur Svavarsson.
Leikarar: Jóhann Sigurðarson, Guðmundur Ólafsson, Kjartan Bjargmundsson, Björgvin Frans Gíslason, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Theodór Júlíusson, Kjartan Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Arnar Jónsson, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Ívar Örn Sverrisson og Valur Freyr Einarsson.
Hljóðfæraleikarar: Sigrún Eðvaldsdóttir, Zbigneiew Dubik, Sigurgeir Agnarsson, Helga Þórarinsdóttir, Jónína Auður Hilmarsdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir, Ármann Helgason, Eiríkur Örn Pálsson, Peter Tompkins og Hávarður Tryggvason.
Sögumaður og umsjón: Viðar Eggertsson.
![Kvöldfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Kvöldfréttir útvarps
Hlustendur eru teknir með í ferðalag um Grikkland, Tyrkland og síðan fram og aftur um aldir og áratugi. Slóðin er mörkuð með búsúkí eða hinum gríska gítar. Hlustendur eru dregnir inn á hinu ýmsu staði þar sem búsúkíð er plokkað og í leiðinni er saga rebetika tónlistarinnar rakin en hún er samtvinnuð dramatískri sögu sem ennþá svíður undan í grískri þjóðarsál.
Grikkland er í raun stórveldi þegar kemur að tónlist. Hlustendur sannfærast örugglega um það á flakki þeirra milli héraða. Á því flakki verður stoppað hvarvetna sem hljóðfæraleikur heyrist. Í lok ferðar fá hlustendur svo að heyra hvernig rebetika hefur mótað gríska tónlistarmenn sem nú eru að gera það gott.
Umsjón: Jón Sigurður Eyjólfsson
Nú eru hlustendur komnir á þann hluta búsúkíslóðarinnar sem stendur þeim hvað næst. Þessi þáttur fjallar um Mikis Þeodorakis, sem samdi lagið um Zorba, og Manos Hadjidakis, sem samdi lagið Börnin frá Pírea. Þessir menn afrekuðu það að leggja ljóð fremstu skálda Grikklands í munn almennings. Þessu merku tónskáld voru vinir en pólitískir andstæðingar. Þeodorakis var einnig í fararbroddi fylkingarinnar sem velti Papadopoulos einræðisherra af stóli árið 1974. Tónlist hans skipaði mikilvægan sess í þeirri baráttu og því hljómaði hún eins og frelsisóður í mörg ár eftir að Grikkland varð aftur frjálst frá einræðinu. Bæði þessi tónskáld eiga einnig mestan þátt í því að búsúkíið fór að hljóma um heim allann.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
![Dánarfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Dánarfregnir.
![Sveifludansar](/spilari/DarkGray_image.png)
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Kvartett Einars Iversen leikur lögin Swedish Pastry, Bernie's Tune, Lover Man, I May Be Wrong, S'Wonderful og Ain't Misbehavin'. Kjell Karlsen og félagar leika lögin Practically Duke, Dear George, Thumber, Blue Daniel, Scrapple From The Apple, Fair Weather og Five Spot After Dark. Thomas Huber & Jazz Connection flytja lögin Strange Excuse, Squash At Two, I Knew, Pep Talk og Flamba. Kristinn Svavarsson og félagar hans leika lögin Put Your Head On The Shoulder, Ó borg mín borg, Tvær stjörnur, Blendnar tilfinningar og Samferða.
![Sagnaþættir Jóns Helgasonar](/spilari/DarkGray_image.png)
Jón Helgason ritstjóri fæddist 1914 og ólst upp á bænum Stóra-Botni í Hvalfirði. Jónas frá Hriflu réð hann sem blaðamann Nýja dagblaðsins rétt rúmlega tvítugan að aldri. Þar með voru örlög hans ráðin. Jón var blaðamaður næstu árin en fékkst líka við þýðingar og samdi sagnaþætti sem birtust í blöðum og bókum.
Umsjón: Gunnar Stefánsson. Lesari með umsjónarmanni Svanhildur Óskarsdóttir.
(Áður á dagskrá 2005)
Söguþátturinn Landskuld af Laugavatnsdal, fyrri hluti. Höfundur: Jón Helgason ritstjóri. Prentað í „Íslenskt mannlíf II". Lesari með umsjónarmanni er Svanhildur Óskarsdóttir. Umsjónarmaður: Gunnar Stefánsson.
![Stefnumót við Sturlunga](/spilari/DarkGray_image.png)
Fjallað er um Sturlungasögu og rætt við leika og lærða um söguna, sögusviðið og einstakar persónur frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagksrá 1984-85)
Í þættinum er fjallað um réttarstöðu eiginkvenna, frillna og fylgikvenna á Sturlungaöld. Vitnað er í erindi Önnu Sigurðardóttur og rætt við Guðmund J. Guðmundsson sagnfræðing og kennara.
Brot úr erindi Önnu, áður flutt í útvarpi 21. ágúst 1980: Úr veröld kvenna - Heimanfyglja og kvánarmundur.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
![Litla flugan](/spilari/DarkGray_image.png)
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Þátturinn er tileinkaður básúnuleikaranum, harmóníkuleikaranum, hljómsveitarstjóranum og söngvaranum Birni R. Einarssyni, sem lést 19. maí sl. Leiknar verða hljóðritanir með Birni og hljómsveit hans frá sjötta áratugnum: lög af útgefnum 78-snúninga plötum frá HSH og Tónika, og gamlar innanhússupptökur Ríkisútvarpsins með danslögum úr útvarpssal við Austurvöll. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir
![Vikulokin](/spilari/DarkGray_image.png)
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
![Næturtónar](/spilari/DarkGray_image.png)
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Morguntónar](/spilari/DarkGray_image.png)
Tónlist af ýmsu tagi.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Gestur Felix á ljúfum laugardagsmorgni var kennarinn og tónlistarmaðurinn Björn Kristjánsson sem gengur líka undir listamannsnafninu Borko. Björn talaði um fimm hátíðir sem hann hefur komið að því að halda og þar kenndi margra grasa. Hann talaði um Innipúkann, Listahátíðina Krútt, Sumarmölina, Hæglætishátíð og klykkti svo út með Pallanum 2013. Þá var ný ábreiða af laginu Útihátíð leikin en hún er nú flutt af hljómsveitinni sem Borko spilar og syngur með, FM Belfast.
Þema dagsins í tónlistinni var hiti í tilefni af Bræðslunni sem haldin er í Borgarfirði eystri.
tónlist:
Sú ást er heit - Magnús og Jóhann
Haustpeysan - Borko
floating on a moment - Beth Gibbons
Útihátíð - FM Belfast
Funheitur - Pláhnetan
Cooler than me - Mike Posner
Hot hot hot - The Cure
Bráðna - Frumburður og Daniil
You sexy thing - Hot Chocolate
Fullkominn dagur til að kveikja í sér - Emmsjé Gauti, Björn Jörundur og Fjallabræður
Girl on fire - Alicia Keys
Hot love - T REx
Hoppum út í heita sól - Matti Matt
Hot Milf Summer - Reykjavíkurdætur
Fingur - Írafár
Gemmér Gemmér - Iceguys
![Salka Sól](/spilari/DarkGray_image.png)
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
![Hádegisfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Smellur](/spilari/DarkGray_image.png)
Njóttu laugardaganna með Atla Má með smellum fyrri áratuga. Nostalgísk samvera og besta tónlistin, afmælisbörn, útgáfur og allt þar á milli. Hvar er betra að vera á laugardagseftirmiðdegi, svarið er hvergi!
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Síðdegisfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Tónlistinn](/spilari/DarkGray_image.png)
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Kvöldfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Kvöldfréttir útvarps
![Eldhúsverkin](/spilari/DarkGray_image.png)
Tónlist að hætti hússins.
![Bræðslan](/spilari/DarkGray_image.png)
Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Bræðslunni.
Umsjón: Steiney Skúladóttir.
Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Bræðslunni. Fram koma: Hildur Kristín, Á móti sól, Kælan mikla, Gildran, Aron Can og GDRN.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson.