Björgvin er á hlaupum að undirbúa stúdíóið fyrir páskaveislu með Skoppu og Skrítlu. Hann er heldur betur að falla á tíma því það er allt á hvolfi. Tákn dagsins er páskaegg. Björgvin segir krökkunum frá því af hverju við höldum upp á páska en Spegill Speglagrímsson bætir síðan um betur og segir honum frá uppruna páskaeggjanna. Skoppa og Skrítla mæta svo á svæðið á meðan enn er allt á hvolfi. Björgvin afsakar sig en þær segja að þetta sé ekkert mál, þau geti hjálpast að.