Kertasníkir stjórnar jólaballi Stundarinnar okkar en Björgvin er hvergi sjáanlegur. Enginn veit hvar Björgvin er, hann er týndur. Kertasníkir reynir að láta sem ekkert sé, kennir börnunum tákn dagsins sem er "jólaball" en börnunum er eitthvað farið að gruna. Björgvin hringir loks í Kertasníkir og segist vera baksviðs og rétt ókominn. Björgvin er hins vegar villtur og villist inní leikmunageymslu. Í leit sinni að jólaballinu hittir hann köttinn Kela, Gamla Grjóna og Grýlu.
Keli: Steinn Ármann Magnússon
Grjóni: Ármann Guðmundsson
Grýla: Edda Björgvinsdóttir
Kertasníkir: Örn Árnason
Gestir á balli: Eiríkur Fjalar (Laddi) og Páll Óskar
Kór: Kársneskórinn
Kórstjórn: Þórunn Björnsdóttir
Hljómsveitin Bermuda: Ingvar Alfreðsson, Ómar Örn Arnarson, Gunnar Reynir Þorsteinsson og Pétur Kolbeinsson.