Björgvin er mættur með Kalla kanínu í settið, en tákn dagsins í dag er einmitt húsdýragarður. Björgvin týnir svo Kalla þegar að hann fer að segja brandara. Björgvin leitar eins og vitlaus maður að Kalla kanínu en þá kemur Dýrmundur Dalfjörð í heimsókn en hann hafði villst uppí Sjónvarpshús þegar hann átti að mæta í Húsdýragarðinn, fyrsta vinnudaginn sinn. Dýrmundur er alveg miður sín en Björgvin róar hann þó hann sé órólegur útaf hvarfi Kalla kanínu. Hann kynnir svo tímavél dagsins og Spegill Speglagrímsson töfrar hana fram.