Björgvin Franz kynnir sig sem nýja umsjónarmann Stundarinnar okkar og segir krökkunum hvað veturinn ber í skauti sér. Tákn dagsins er tákn Stundarinnar okkar. Hann kynnir einnig Spegil Speglagrímsson til leiks en hann á nokkuð erfitt með að átta sig á því hvernig töfraspegillinn virkar og það gengur hálf brösulega að fá hann til að virka þar til leiðarvísir kemur fljúgandi úr lausu lofti.
Gestur þáttarins er Þórður húsvörður sem er leikinn af Ladda.