Þátturinn er tileinkaður heyrnalausum. Björgvin á von á gesti sem ætlar að kenna honum táknmál en þá sér hann Tinnu grátandi. Tinna er leið yfir því að vita ekki hvernig álfur hún er, Björgvin er hrifinn af því að hún geti lesið hugsanir. Svo birtist Askur konungur trjáálfanna til að segja Tinnu hvernig álfur hún er.