Björgvin Franz er að taka upp sína eigin bíómynd og rifjar upp sögu kvikmyndarinnar með hjálp Spegils Speglagrímssonar og skoðar hvernig myndir voru í gamla daga og Spegill sýnir honum myndina Skrúbburinn og rósin. Björgvin kynnir til leiks aðalgest dagsins sem er Ari Kristinsson kvikmyndagerðarmaður. Þeir spjalla um þær kvikmyndir sem Ari hefur gert, um það hvernig áhugi hans á kvikmyndum kviknaði. Svo mætir Bergþóra, dóttir Ara í settið og Björgvin kynnir lítið brot úr fyrstu myndinni sem hún lék í fyrir pabba sinn.